Veður

Allt að tuttugu stiga frost inn til landsins

Atli Ísleifsson skrifar
Reikna má að það dragi úr frosti þegar líður á daginn.
Reikna má að það dragi úr frosti þegar líður á daginn. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir suðvestlægum áttum í dag með stöku éljum vestanlands en bjart að mestu fyrir austan.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það sé talsvert frost á landinu núna í morgunsárið, á bilinu tvö til fimmtán stig við ströndina en allt að tuttugu stiga frost inn til landsins. Það dragi úr frosti þegar líður á daginn og í kringum eins til átta stiga frost síðdegis.

Eins og sjá má fór frost í rúmlega tuttugu stig á Þingvöllum klukkan fimm í morgun.Veðurstofan

„Minnkandi vestanátt í nótt, og aftur talsvert frost á landinu.

Hæg breytileg átt í fyrramálið og dálítl él á við og dreif. Vaxandi austanátt síðdegis á morgun, víða 5-13 undir kvöld og léttskýjað. Frost 2 til 12 stig.

Útlit fyrir rólegt veður um helgina, þurrt að kalla og áfram kalt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Breytileg átt 3-8 m/s, en austan 10-15 syðst á landinu undir kvöld. Víða bjart með köflum, en dálítil él á stöku stað. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.

Á laugardag: Norðaustan 5-10, en 10-15 með suðausturströndinni. Víða þurrt og bjart veður, en skýjað og lítilsháttar él austanlands. Frost 2 til 12 stig.

Á sunnudag: Breytileg átt 3-8. Skýjað með köflum á landinu og stöku él sunnantil. Áfram kalt í veðri.

Á mánudag: Gengur í suðaustan 8-13 á sunnan- og vestantil og snjókoma með köflum. Hægari vindur og bjartviðri norðan- austanlands. Hiti frá frostmarki við suðurströndina, niður í 10 stiga frost í innsveitum fyrir norðan.

Á þriðjudag: Ákveðin austan- og suðaustanátt. Snjókoma eða slydda með köflum og hiti kringum frostmark en rofar til síðdegis vestantil.

Á miðvikudag: Útlit fyrir breytilega átt með slyddu eða snjókomu og hiti um eða undir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×