Menning

Aldrei fór ég suður fer fram í ár

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hefur verið sett á dagskrá um páskahelgina.
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hefur verið sett á dagskrá um páskahelgina. Vísir

Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, sem haldin er um páskana á Ísafirði, verður haldin þetta árið. Hátíðinni hefur verið slegið af síðustu tvö ár vegna kórónuveirufaraldursins. 

Þetta kom fram í Morgunkaffinu á Rás 2 í morgun og Instagramsíða Aldrei fór ég suður deilir í hringrás sinni á Instagram. 

„Undir styrkri stjórn Mugisons og þessum hópi, við erum búin að koma saman á fjarfundum á öllum dögum janúarmánaðar. Í gær var tekin sú ákvörðun að við ætlum bara að endurræsa vélina, ýta á reset takkann og á fulla ferð. Aldrei fór ég suður verður haldin með elegans,“ sagði Kristján Freyr Halldórsson, einn skipuleggjenda Aldrei fór ég suður í þættinum. 

Hátíðin er um páskana, sem eru 15. til 17. apríl þetta árið. Kristján greindi jafnframt frá því að Mugison, tónlistarmaður og rokkstjóri hátíðarinnar, er að taka upp nýja plötu sem landsmenn geta beðið spenntir eftir. 

Tilkynnt var í gær að stefnt sé að því að aflétta öllum sóttvarnaaðgerðum innanlands um miðjan mars og verður því vonandi hægt að mæta vestur á Ísafjörð mánuði seinna til að njóta rokkhátíðarinnar góðu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.