Tónlist

We Don't Talk About Bruno vinsælasta lag Disney í 26 ár

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
Tónlistin úr Encanto frá Disney slær hvert metið á fætur öðru þessa dagana.
Tónlistin úr Encanto frá Disney slær hvert metið á fætur öðru þessa dagana. Getty/ Michael Tullberg

Bíómyndin Encanto frá Disney hefur farið sigurför um heiminn síðustu mánuði og hefur lagið We Don´t Talk About Bruno nú slegið met ísdrottningarinnar Elsu við á bandaríska topplistanum Billboard Hot 100.

Lagið Let It Go úr teiknimyndinni Frozen kom sá og sigraði árið 2014 og voru foreldrar og börn um allan heim með lagið á heilanum svo mánuðum skipti. Lagið komst þó aldrei hærra en í fimmta sæti á áðurnefndum lista þar sem Bruno situr nú í því fjórða.

Ekki nóg með það heldur hefur lagið einnig náð fyrsta sæti á breska vinsældarlistanum UK Top 40 og er það í fyrsta skipti sem lag frá Disney nær toppnum þar.

Vinsælasta platan í Bandaríkjunum

Það þarf að fara aftur til ársins 1995 en lög eins og  Can You Feel the Love Tonight úr Lion King, A Whole New World úr Aladdin og Colours Of the Wind úr Pocahontas náðu svipuðum árangri á sínum tíma. Lögin í myndinni Encanto eru samin af Lin-Manuel Miranda sem er einnig höfundur Hamilton og In the Hights söngleikjanna.

Fleiri lög úr myndinni hafa ratað á vinsældarlista, þar á meðal lagið Surface Pressure, og hefur platan með öllum lögunum úr myndinni í heild sinni komið sér í fyrsta sæti á plötulista Billboard. Þegar platan fór í fyrsta sætið sendi hún plötu Adele sem ber heitir 30 í annað sæti listans.

Luisa hin sterka vinsæl

Surface Pressure er orðið hálfgert þemalag elstu systkina á samfélagsmiðlum víðsvegar um heiminn. Lagið fjallar um pressuna og ábyrgðartilfinninguna sem fylgir því að vera sterka systkinið sem tekur þungann en er að brotna að innan. 

Persónan Luisa sem syngur lagið hefur orðið mjög vinsæl og virðast margir ná að tengja við hana og hafa netverjar óskað eftir frekari varningi tengdum persónunni.

Þá er myllumerkið #Encanto gífurlega vinsælt á samfélagsmiðlum og hefur mikill fjöldi myndskeiða tengt því verið gefið út.


Tengdar fréttir

Disney+ byrjuð að setja inn myndir á íslensku

Streymisveitan Disney+ hefur orðið við beiðni Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra um að bjóða upp á efni með íslenskri talsetningu. Nú eru myndir á borð við Aladdin, Ísöld og Herkúles í boði með íslensku tali.

Disney-árið mikla 2019

Disney-samsteypan mun varla þurfa að senda frá sér neikvæðar afkomuviðvaranir á þessu ári. Fyrirtækið á flestar þeirra bíómynda sem beðið er með mestri eftirvæntingu 2019, þar á meðal Star Wars: Episode IX og Avengers: Endgame.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.