Innlent

Búast má við enn hærri tölum eftir helgi

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Gríðarlegur fjöldi hefur skimaður á Suðurlandsbraut síðustu daga. 
Gríðarlegur fjöldi hefur skimaður á Suðurlandsbraut síðustu daga.  Vísir/Vilhelm

16 ára unglingur er í öndunarvél á gjörgæslu Landspítalans vegna Covid-19. Enn einn metdagurinn var í fjölda þeirra sem greindust smitaðir af Covid-19 í gær eða 522. Verið er að undirbúa að opna fimmta farsóttarhúsið.

493 greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær og 29 á landamærum. Aðeins tæplega þriðjungur var í sóttkví við greiningu. Þetta er þriðji dagurinn í þessari viku sem met er slegið. Tæplega 3.200 manns eru í einangrun og ríflega 4.000 í sóttkví.

Alls eru ellefu á Landspítala, þar af fjórir á gjörgæslu. Af þeim eru þrír í öndunarvél. Einn þeirra er aðeins sextán ára gamall samkvæmt upplýsingum frá Landspítala. Ekki var unnt að fá frekari upplýsingar um líðan viðkomandi. 

Langflestir þeirra sem eru í einangrun núna eru á aldrinum 18-29 ára en þar á eftir kemur aldurshópurinn 6-12 ára.

Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir talsmaður almannavarna segir að tölur síðustu daga komi ekki á óvart.

Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir talsmaður almannavarna segir að tölur síðustu daga komi ekki á óvart.Vísir

„Þetta er það sem við bjuggumst við og það sem að minnisblað Þórólfs byggir á og spálíkanið hans Thors Asperlunds. Við vitum það náttúrulega um helgar og á frídögum eins og þessum eru alltaf færri sýni en venjulega þannig að það má búast við enn meiri aukningu næstu daga.“

Gríðarlegt álag sé á smitrakningarteyminu.

„Smitrakningin gengur vel en líka af því við höfum bætt mikið við fjöldann í úthringingum. Við höfum líka fengið aðstoð frá sjálfboðaliðum frá Rauða krossinum sem hringja kauplaust í fólk nú yfir hátíðarnar,“ segir hún.

Ingibjörg  segir flesta taka símtali um einangrun eða sóttkví af yfirvegun.

„Það er alveg ótrúlegt hvað langflestir sýna þessu mikið æðruleysi og fara strax í að reyna að finna nýjar leiðir til að verja tímanum saman eins og með fjarfundarbúnaði og öðru,“ segir Ingibjörg.

Ríflega 200 dvelja nú í farsóttarhúsnunum í Reykjavík og eru ennþá nokkur herbergi laus. Búist er við að fimmta farsóttarhúsið opni í Reykjavík í janúar.


Tengdar fréttir

Sextán ára í öndunarvél vegna Covid

Sextán ára einstaklingur liggur í öndunarvél á gjörgæslu á Landspítalanum vegna veikinda af völdum kórónuveirunnar. Þetta staðfestir Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild spítalans, í samtali við fréttastofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×