Innlent

443 greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna á einum sólarhring hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar 2020.
Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna á einum sólarhring hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar 2020. Vísir/Vilhelm

443 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hér á landi á einum sólarhring frá upphafi faraldursins.

293 af þeim 443 sem greindust innanlands í gær voru utan sóttkvíar við greiningu, eða 66 prósent. 150 voru í sóttkvíar, eða 34 prósent. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að um sjötíu prósent smitaðra hafi greinst með ómíkronafbrigði veirunnar.

Þetta kemur fram á síðunni covid.is. 2.622 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 2.259 í gær. 3.159 eru nú í sóttkví, en voru 3.301 í gær. 456 eru nú í skimunarsóttkví.

Á vef Landspítalans segir að níu sjúklingar liggi nú inni á Landspítala vegna COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 68 ár. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél.

Fimmtíu greindist á landamærunum í gær – fjörutíu virk smit í fyrri landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki tíu.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 735,5, en var 655,3 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 67,7 samanborið við 57,3 í gær.

Alls hafa 22.087 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 37 andlát verið rakin til COVID-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 2.864 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá var 1.835 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 989 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Þá voru 232 sýni tekin í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×