Lífið

Dóra Júlía hélt for­sýningar­partý á Þetta reddast á Peter­sen svítunni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Dóra Júla var auðvitað í bleiku í tilefni dagsins!
Dóra Júla var auðvitað í bleiku í tilefni dagsins! Vísir/Hulda Margrét Óladóttir

Plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía Agnarsdóttir verður seint talin vera stjörnukokkur. Hún er nú samt að fara af stað með matreiðsluþætti þann 23. desember á Stöð 2.

Í þáttunum Þetta reddast fær Dóra Júlía til sín góða gesti og með aðstoð þeirra matreiðir hún fram misglæsilega rétti og kynnist viðmælendum sínum í leiðinni. Þetta er óhefðbundin útgáfa af spjallþætti sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. 

Dóra Júlía hélt ræðu áður en þátturinn var sýndur. Vísir/Hulda Margrét Óladóttir

Dóra Júlía hélt forsýningarpartý á Petersen svítunni í gær í tilefni af því að fyrsti þáttur fer í loftið í næstu viku. Þátturinn var ótrúlega fyndinn og skemmtilegur, en í fyrsta þættinum fær hún til sín Glee strákana Patta, Binna og Bassa. Á meðal þeirra sem munu koma fram í þessum þáttum eru Katrín Jakobsdóttir , Annie Mist og Páll Óskar. 

Patrekur Jaime, Binni Glee og Bassi Maraj mættu saman í partýið. Þeir eru viðmælendur Dóru Júlíu í fyrsta þætti og gestir hlógu sig máttlausa yfir þættinum.Vísir/Hulda Margrét Óladóttir

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem Hulda Margrét Óladóttir ljósmyndari okkar tók á viðburðinum í gær. 

Fyrsti þátturinn fékk mjög góðar viðtökur.Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Bára Guðmundsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir.Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Sóley Kristjánsdóttir vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni.Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Arnar Eyfells og Brynja Kúla eru alltaf flott saman. Parið trúlofaði sig í París í haust.Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vinkonurnar Halldís Hrund, Fransiska Björk, Hanna Guðrún og Vigdís Erla mættu auðvitað til að fá forskot á sæluna og sjá fyrsta sjónvarpsþátt Dóru Júlíu á undan öllum.Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Ingileif Friðriksdóttir hjá Ketchup Creative sem framleiðir þættina fyrir Stöð 2 ásamt Báru Guðmundsdóttur kærustu Dóru Júlíu.Vísir/Hulda Margrét Óladóttir

Fleiri myndir má finna í myndaalbúminu hér fyrir neðan.

Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir
Vísir/Hulda Margrét Óladóttir

Tengdar fréttir

Fyrsta sýnishornið úr Þetta reddast

Þann 23. desember fara af stað þættirnir Þetta reddast á Stöð 2. Umsjónarkona þáttanna er plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía Agnarsdóttir. 

Dóra Júlía tekur við Íslenska listanum á FM957

Plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía Agnarsdóttir hefur verið ráðin til Sýnar og fer hún af stað með sinn fyrsta þátt af Íslenska listanum á FM957 á laugardag. 

Svona lítur fataskápur Dóru Júlíu út

Plötusnúðurinn Dóra Júlía er á leiðinni í loftið með nýja þætti á Stöð 2 sem heita Þetta reddast þar sem hún fær skemmtilegt fólk til að elda með sér á meðan hún spjallar við það um alls konar hluti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.