Hér fyrir neðan má sjá uppskriftina af piparkökuhúsinu sem Eva Laufey Kjaran lét Bassa Maraj og Birnu Maríu Másdóttur baka.
Aukahlutir sem er gott að eiga
- Smarties
- Sykurskraut
- Rósmarín greinar, ferskar
- Jólastafir
Uppskrift:
- 200 g smjör
- 200 g púðursykur
- 2 dl síróp
- ½ tsk engifer
- 2 msk kanill
- 1 tsk negull
- 1 msk matarsódi
- 1 stórt egg
- 1/2 tsk lyftiduft
- 750 g hveiti

Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C (blástur).
- Setjið sykur, smjör, síróp, kanil, negul, matarsóda og lyftiduft í pott og blandið vel saman þar til suðan kemur upp.
- Færið pottinn af hellunni og bætið eggi og hveiti út í.
- Hellið deiginu á borðflöt og það er ekki verra að setja smá hveiti undir, hnoðið deigið og fletjið út.
- Skerið út hús í þeirri stærð sem þið viljið (það er hægt að finna ýmis snið að húsum á netinu)
- Setjið húsin eða fígúrur á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 180°C í 12 mínútur. Kælið áður en þið færið af plötunni.
Glassúr:
- 3 eggjahvítur
- 3 bollar flórsykur
- ½ tsk sítrónusafi
Aðferð:
- Þeytið eggjahvítur þar til byrjar að freyða í skálinni.
- Bætið flórsykrinum saman og þeytið þar til kremið er stífþeytt. Bætið sítrónusafanum saman við í lokin.
- Setjið glassúrinn gjarnan í sprautupoka og sprautið á kökurnar.