Myndband: Cybertruck á prófunarbraut Tesla Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 13. desember 2021 07:01 Cybertruck á ferð og flugi. Tesla Frumgerð af Tesla Cybertruck sást á prófunarbraut við verksmiðju Tesla í Fermont, Kaliforníu. Bíllinn á myndbandinu virðist vera talsvert nær því að vera endanleg útgáfa en sá sem var kynntur upprunalega árið 2019.
Bíllinn er afar frammúrstefnulegur og hefur framtíðarlegt yfirbragð. Það er miðað við útlitið á myndbandinu. Af því einu er ómögulegt að segja hvernig bíllinn mun reynast í raunveruleikanum eða líta út í endanlegri útgáfu. Svo virðist sem frumgerðin sé til að mynda með eina stóra rúðuþurrku, sem er breyting frá því sem áður hefur komið fram. Myndbandið er aðgengilegt á YouTube rásinni Chile Al100. Myndbandið er eitt það besta af Cybertruck. Það hefur ekki mikið sést til bílsins áður. Reikna má með að frekari upplýsingar liggi fyrir þegar fjárhagsleg niðurstaða Tesla á fjórða ársfjórðungs verður gerð upp. Framleiðslan verður væntanlega í Gíga verksmiðju Tesla í Austin, Texas. Framleiðslan mun þó væntanlega ekki hefjast fyrr en eftir um ár í fyrsta lagi. Nýjustu orðrómar herma að það verði rafmótor á hverju hjóli, ólíkt því sem áður hefur verið kynnt. Upprunalega áttu að vera þrír mótorar til að færa hinn fjórhjóladrifna Cybertruck úr stað.
Vistvænir bílar Tesla Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent