Kristján Örn markahæstur er PAUC kastaði frá sér sigrinum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. nóvember 2021 21:23 Kristján Örn skoraði fimm mörk þegar PAUC kastaði frá sér sigrinum í kvöld. PAUC Þrír Íslendingar voru í eldlínunni í leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Bjarki Már Elísson og félagar hans í Lemgo unnu níu marka sigur gegn Cocks, Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í PAUC gerðu klaufalegt jafntefli gegn Gorenje og Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten gerðu jafntefli þegar liðið tók á móti Nimes.
Bjarki Már og félagar hans í Lemgo tóku forystuna snemma á heimavelli gegn Cocks og náðu mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik. Þegar gengið var til búningsherbergja var munurinn fjögur mörk, 18-14. Heimamenn í Lemgo juku svo forskot sitt enn frekar í seinni hálfleik og unnu að lokum afar sannfærandi níu marka sigur, 39-30. Bjarki Már skoraði tvö mörk fyrir Lemgo sem er nú með sex stig í fyrsta til fjórða sæti B-riðils, líkt og GOG, Nantes og Benfica. Þá skoraði Kristján Örn Kristjánsson fimm mörk fyrir PAUC er liðið gerði jafntefli gegn Gorenje í botnslag C-riðils, . Kristján og félagar náðu mest þriggja marka forystu í fyrri hálfleik og fóru 17-14 inn í hlé. Liðið náði svo mest fimm marka forystu í seinni hálfleik en slæmur kafli undir lok leiks hleypti gestunum þó hættulega mikið inn í leikinn. Gestirnir nýttu sér það og náðu að jafna undir lok leiksins og lokatölur urðu 26-26. Þetta var fyrsta stig Kristjáns og félagar í Evrópudeildinni, en liðið er nú með eitt stig á botni riðilsins eftir fjóra leiki. Að lokum gerðu lærisveinar Aðalsteins Eyjólfssonar jafntefli gegn Nimes í D-riðli, 25-25, en liðið er nú með tvö stig eftir fjóra leiki.
Handbolti Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira