Segir afsögn ótengda umdeildri starfsemi Úrvinnslusjóðs Kjartan Kjartansson skrifar 23. nóvember 2021 14:02 Laufey Helga Guðmundsdóttir segir það hafa verið sitt síðasta verk hjá Úrvinnslusjóði að skrifa undir ársreikninga síðustu ára sem hafi ekki verið skilað. Fráfarandi stjórnarformaður Úrvinnslusjóðs segir afsögn sína ekki tengjast starfsemi sjóðsins. Ríkisendurskoðun vinnur nú að skýrslu um úttekt sína á starfseminni en sjóðurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að ofmeta stórlega hversu hátt hlutfalls íslensks plasts er endurunnið.
Úrvinnslusjóði er ætlað að hvetja til endurvinnslu úrgangs. Hann sýslar með svonefnt úrvinnslugjald sem er greitt af öllum vörum í plast- og pappírsumbúðum sem eru fluttar inn til landsins. Úrvinnslugjaldið er nýtt til að greiða fyrir meðhöndlun og endurnýtingu varanna eða umbúðanna eftir að þær hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum. Þannig fá fyrirtæki sem endurvinna plast til dæmis ákveðna upphæð fyrir hvert kíló sem er endurunnið en lægri upphæð sé plastið brennt til orkuframleiðslu. Gagnrýnt hefur verið að allt plast sem er flutt frá Íslandi teljist endurunnið í bókum Úrtvinnslusjóðs, óháð hversu mikið af því er raunverulega endurunnið.Vísir/Getty Undanfarin misseri hefur verið deilt á sjóðinn, meðal annars vegna þess að hann hefur ekki skilað ársskýrslum í meira en fimm ár. Alþingi samþykkti því að biðja ríkisendurskoðanda um úttekt og skýrslu um starfsemi sjóðsins í vor. Úttektin er enn í vinnslu. Laufey Helga Guðmundsdóttir sagði af sér sem stjórnarformaður Úrvinnslusjóðs í síðustu viku þrátt fyrir að enn væru tvö ár eftir að skipunartíma hennar. Í Facebook-færslu sem hún skrifaði í gær fullyrðir hún að afsögnin sé „alls ótengd“ starfsemi sjóðsins. „Að gefnu tilefni langar mig að taka fram að ég baðst lausnar sem stjórnarformaður Úrvinnslusjóðs að eigin ósk vegna anna við önnur störf,“ segir í færslu hennar. Eitt síðasta verk hennar sem stjórnarformaður hafi verið að skrifa undir ársreikninga sjóðsins fyrir árin 2017 til 2020. Segir hún að ekki hafi verið hægt að gera það fyrr þar sem framsetning ársreikninga sjóðsins hjá Fjársýslu ríkisins hafi stangast á við sérlög um Úrvinnslusjóð. Lögum um úrvinnslugjald hafi verið breytt í júní og því sé nú hægt að afgreiða ársreikninga. Rangar tölur um hlutfall endurvinnslu Í umfjöllun Stundarinnar um Úrvinnslusjóð kemur fram að tölur hans um endurvinnslu eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum. Allt plast sem fyrirtæki flytji úr landi teljist endurunnið, óháð því hversu hátt hlutfall þess sé raunverulega endurunnið. Fyrirkomulagið skapi þannig ekki hvata til að endurvinna plast heldur að það sé flutt úr landi. Úrvinnslusjóður hafi ekki leiðrétt tölur sínar eftir að í ljós kom að Swerec, sænskt plastendurvinnslufyrirtæki sem tekur meðal annars við plasti frá Sorpu, Terra og Íslenska gámafélaginu, hefði orðið uppvíst að svindli. Úrvinnslusjóður hafi ekki sóst eftir skaðabótum frá fyrirtækinu ólíkt því sem gerðist með norska og sænska viðskiptavini sænska fyrirtækisins. Rannsókn norskra yfirvalda bendi til þess að aðeins um 19% af plasti sem var sent til Swerec hafi verið endurunnið en afgangurinn hafi verið brenndur eða sendur til annarra landa. Þrátt fyrir þetta gera tölur Úrvinnslusjóðs ráð fyrir að allt plast sem var sent úr landi hafi verið endurunnið, alls um helmingur af öllu plasti á landinu. Í Facebook-færslu sinni sagðist Laufey Helga ekki geta svarað fyrir atvik sem áttu sér stað áður en hún tók sæti í stjórn Úrvinnslusjóðs í ágúst árið 2019. Stjórn sjóðsins hafi þó unnið að því að auka hlutfall plasts sem fer til endurvinnslu og meðal annars hækkað verulega endurgjald fyrir endurvinnslu plastumbúða í október í fyrra. Nýleg lagabreyting geri ráð fyrir að Úrvinnslusjóður tryggi að fullnægjandi gögn um ráðstöfun úrgangs liggi fyrir áður en greiðslur eru inntar af hendi til fyrirtækja. „Hjá sjóðnum er nú unnið ötullega að því að endurskoða skilmála þjónustuaðila í samræmi við þetta,“ skrifar hún. Úttekt gæti lokið í vor Ekki liggur fyrir hvenær úttekt ríkisendurskoðanda á Úrvinnslusjóði lýkur, að því er segir í skriflegu svari embættisins við fyrirspurn Vísis. Spurningar hafi verið lagðar fyrir stjórn og starfsfólk sjóðsins en einnig sé unnið að öflun ýmissa annara gagna og sjónarmiða. Líklegt sé þó að stjórnsýsluendurskoðun ljúki á vormánuðum 2022. Þá taki við umsagnartími þar sem þeir sem sæta athugun fá drög að skýrslum og greinargerðum til umsagnar. Væntanlega ljúki málinu endanlega á vormánuðum þegar ríkisendurskoðun sendir Alþingi skýrslu um athuganir sínar. Skýrsla og niðurstaða úttektarinnar verði gerð opinber eftir að þingnefnd hefur tekið málið fyrir.
Stjórnsýsla Umhverfismál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Sjá meira