Lífið

Liðin réðu ekki við spurninguna um Hagkaup

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sunneva og Ástrós giskuðu á Dóru Júlíu. Það var ekki rétt. 
Sunneva og Ástrós giskuðu á Dóru Júlíu. Það var ekki rétt. 

Í síðasta þætti af Kviss mættust KR og Fylkir í 8-liða úrslitunum. Í liði KR voru þau Benedikt Valsson og Kristín Pétursdóttir.

Í liði Fylkir voru þær Sunneva Einarsdóttir og Ástrós Traustadóttir. Viðureignin var nokkuð spennandi og vakti ein spurning nokkuð mikla athygli.

Spurt var um frægt Hagkaupstef úr auglýsingu og hvaða íslenska söngkona færi þar á kostum.

Liðin hugsuðu sig vel um og kom ekki fram rétt svar. Hér að neðan má sjá brot úr þættinum frá því á laugardaginn. Rétt svar kom fram í umræðu um spurninguna en KR var á því máli að það gæti ekki staðist að sú söngkona myndi syngja inn á auglýsingu.

Klippa: Liðin réðu ekki við spurninguna um Hagkaup





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.