Skosku meistararnir búnir að ráða eftirmann Gerrard Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. nóvember 2021 18:00 Giovanni van Bronckhorst var í dag kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Rangers. Marcel Bonte/Soccrates/Getty Images Hollenski þjálfarinn Giovanni van Bronkchorst var í dag kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Skotlandsmeistara Rangers. Hann tekur við liðinu af Liverpool goðsögninni Steven Gerrard sem tók á dögunum við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.
Van Bronkchorst er 46 ára, en hann lék með Rangers frá 1998 til 2001 og vann fimm titla með félaginu. Þar af varð hann skoskur meistari tvisvar með Rangers. Á ferli sínum sem leikmaður lék hann einnig með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann vann deildina tímabilið 2001-2002 og FA bikarinn ári seinna. Þá varð hann spænskur meistari með Barcelona í tvígang og með Börsungum vann hann einnig Meistaradeild Evrópu árið 2006. Hann á einnig að baki 106 leiki fyrir hollenska landsliðið. Van Bronkchorst hóf þjálfaraferil sinn hjá Feyenoord í hollensku deildinni, en atvinnumannaferill hans sem leikmaður hófst einmitt þar. Hann tók við sem aðalþjálfari liðsins árið 2015 og gerði þá að hollenskum meisturum tímabilið 2016-2017. 🆕 Giovanni van Bronckhorst has today agreed to become the 17th permanent manager of Rangers Football Club.🇳🇱 #WelcomeGVB | @The_real_Gio 👉 https://t.co/FazaqgMJLU pic.twitter.com/7mzgJK1MTX— Rangers Football Club (@RangersFC) November 18, 2021 Van Bronkchorst tekur við Rangers í efsta sæti deildarinnar. Liðið er með 30 stig eftir 13 leiki, fjórum stigum meira en erkifjendurnir í Celtic.
Skoski boltinn Mest lesið Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Handbolti Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma Fótbolti Wendell Green rekinn frá Keflavík Körfubolti Dauðvona maður kláraði heilan járnkarl Sport Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Körfubolti BKG kveður keppinaut: CrossFit á viðkvæmum stað Sport Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Handbolti „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Enski boltinn Ljótt brot á Arnóri: „Enginn annar hefði spilað með þessa verki“ Fótbolti Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant Körfubolti Fleiri fréttir Afar vandræðaleg samskipti Amorims og blaðamanns Slot lofar Xabi Alonso fyrir leik þeirra Ancelotti: Þeir áttu að fresta öllum fótbolta á Spáni Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Ljótt brot á Arnóri: „Enginn annar hefði spilað með þessa verki“ Íslandshrellir bjargaði Fulham með ótrúlegum hætti Meiddur Ödegaard gifti sig í leyni Áslaug og Katla féllu en Arnór og Ísak óhultir Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Sjáðu ævintýralega björgun og mistök Glódísar Lampard gæti orðið næsti stjóri Roma Rekinn út af fyrir að hrækja á dómara Skoraði stórglæsilegt mark og ætlar að horfa á það aftur og aftur Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið Jökull laus allra mála hjá Reading | Á heimleið? „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Mourinho þolir ekki tyrkneska dómara: „Erum að berjast gegn kerfinu“ Áslaug Munda með mark og stoðsendingu fyrir framan mömmu Skoraði furðulegt sjálfsmark í stað þess að bjarga marki: „Hvað ertu að gera?“ Edu yfirgefur Arsenal Liverpool-stjarnan slapp með skrekkinn Skilur ekki hvernig Lisandro Martínez slapp við rauða spjaldið Dulin skilaboð frá Mo Salah eftir leik helgarinnar Annar heimsmeistaratitill Norður-Kóreu á sex vikum Kennir sjálfum sér um uppsögnina Hetjumark hrifsað af Mikael og félögum í blálokin Skellur hjá Frey sem var án Patriks og varamarkmannsins Logi í bann fyrir mótmæli og Júlíus efstur Íslendinga Sveindís enn í hlutverki varamanns Sjá meira