Telur Ómar Inga besta leikmanninn í Þýskalandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. nóvember 2021 09:31 Ómar Ingi Magnússon skorar eitt níu marka sinna gegn Füchse Berlin. getty/Florian Pohl Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands, telur Ómar Inga Magnússon vera besta leikmann þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.
Ómar Ingi skoraði níu mörk þegar Magdeburg vann Füchse Berlin, 33-29, í toppslag í þýsku deildinni á laugardaginn. Selfyssingurinn er markahæsti leikmaður deildarinnar með 74 mörk. Magdeburg er með fullt hús stiga á toppnum. Í viðtali fyrir leikinn gegn Füchse Berlin sagði Kretzschmar að enginn leikmaður í þýsku deildinni stæði Ómari Inga framar. „Að mínu áliti er Ómar Ingi Magnússon besti leikmaður deildarinnar,“ sagði Kretzschmar. Handbolti.is vakti athygli á ummælum hans. „Magdeburg er með besta lið Þýskalands um þessar mundir. Liðið leikur frábærlega og samleikur liðsins er nær fullkominn með Ómar Inga innanborðs,“ sagði Kretzschmar jafnframt. Hann lék með Magdeburg á sínum tíma, meðal annars undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Eftir að ferlinum lauk hefur Kretzschmar getið sér gott orð sem sérfræðingur í sjónvarpi. Hann starfar einnig fyrir Füchse Berlin. Ómar Ingi kom til Magdeburg frá Álaborg í fyrra og var markakóngur þýsku deildarinnar á sínu fyrsta tímabili með liðinu. Magdeburg endaði í 3. sæti þýsku deildarinnar á síðasta tímabili og vann EHF-bikarinn. Þá unnu Ómar Ingi og félagar heimsmeistarakeppni félagsliða í haust.
Þýski handboltinn Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Leik lokið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Leik lokið: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira