Innlent

Hvorki tjón né slys á fólki vegna skjálftans til­kynnt til lög­reglu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir hvorki tjón né slys á fólki hafa verið tilkynnt til lögreglu í kjölfar stóra skjálftans í dag. 
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir hvorki tjón né slys á fólki hafa verið tilkynnt til lögreglu í kjölfar stóra skjálftans í dag.  Vísir/Egill

Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir jarðskjálftann, sem reið yfir á öðrum tímanum eftir hádegi í dag og var af stærðinni 5,2, hafa fundist vel á Selfossi og víðar. Ekki hafi borist tilkynningar um tjón eða slys til lögreglu. 

„Hann fannst vel hér á Selfossi og reyndar víða um land. Okkar fyrstu viðbrögð voru að hringja á þá bæi sem eru næst upptökum skjálftans. Þar kom mönnum saman um að þeir hefðu jú fundið vel fyrir skjálftanum en það hefur ekki orðið tjón sem við vitum alla vega um enn þá og allt í lagi á öllum bæjum,“ segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu. 

Einhverjum hafi líklega brugðið talsvert, enda langt síðan svo stór skjálfti reið yfir á Suðurlandi. 

„Mönnum bregður við að fá svona öflugan hristing en þetta er svo sem eitthvað sem við megum búast við á Suðurlandi. Það hreyfðist vel hér undir okkur,“ segir Oddur. 

Engin símtöl hafi borist lögreglunni í kjölfar skjálftans, enda séu fyrstu viðbrögð kannski önnur á tækniöld. 

„Ég held að það sé orðið þannig í þessum tæknivædda heimi að fyrstu viðbrögð eru alltaf að hlaupa og gá hvað Veðurstofan segir um staðsetningu og þess háttar. Þannig að það hefur ekki verið mikið um innhringingar hér enda ekki tjón og ekki slys þannig að þar með erum við betur sett.“

Hann telur ólíklegt að búast megi við fleiri stórum skjálftum. 

„Við eigum mun stærri skjálfta frá 1987 og hann var stakur líka og fjaraði út sú hreyfing. Ég held að líklega sé sama staðan núna en ég er ekki sérfræðingur í þessu.“


Tengdar fréttir

Ekki grunur um að gos sé í vændum en Hekla undir smá­sjá

Ekki er talin hætta á að Hekla muni gjósa eftir að jarðskjálfti af stærðinni 5,2 reið yfir Suðurlandið í dag. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sérfræðingar Veðurstofu Íslands hafa lokið fundi sínum um skjálftann og telja hann ekki tengjast Heklu beint. 

Skjálfti af stærð 5,2 fannst vel víða á Suðvesturhorninu

Jarðskjálfti af stærðinni 5,2 reið yfir klukkan 13:21 og fannst hann vel á nær öllu suðvesturhorni landsins. Fyrstu mælingar Veðurstofu sýna að hann hafi verið af stærðinni 4,8 en sú tala hefur nú verið uppfærð. Skjálftinn átti upptök sín um 1,9 km Suðvestur af Vatnafjöllum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×