Innlent

Fæðingarsprengja hjá Íslendingum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fæðingarmet var sett á síðasta ársfjórðungi.
Fæðingarmet var sett á síðasta ársfjórðungi. Vísir/Vilhelm

Alls fæddust 1310 börn í júlí, ágúst og september árið 2021. Fæðingar á einum ársfjórðungi hafa ekki verið fleiri frá því byrjað var að taka tölurnar saman ársfjórðungslega árið 2010. Mun færri féllu frá á sama tímabili eða 580 einstaklingar.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að 2.530 einstaklingar hafi flutt til landsins umfram brottflutta. Aðfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 340 umfram brottflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.190 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

Samtals bjuggu 374.830 manns á Íslandi í lok þriðja ársfjórðungs 2021, 192.210 karlar og 182.620 konur. Kynhlutlausir voru 55 en vegna smæðar hópsins er honum dreift af handahófi á milli karla og kvenna.

Landsmönnum fjölgaði um 3.260 á ársfjórðungnum, á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 240.050 manns en 134.780 á landsbyggðinni.

Fæddir og dánir frá 2010-2021 samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands.Hagstofan

Svíþjóð var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 190 manns á þriðja ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 330 íslenskir ríkisborgarar af 560 alls. Af þeim 1.000 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 350 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (260), Noregi (140) og Svíþjóð (200), samtals 600 manns af 900. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 720 til landsins af alls 3.200 erlendum innflytjendum. Rúmenía kom næst en þaðan fluttust 230 erlendir ríkisborgarar til landsins. Erlendir ríkisborgarar voru 54.140 eða 14,4% af heildarmannfjöldanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×