Skortur á magnesíum mun líklegast hafa mikil áhrif á framleiðslu bíla Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 20. október 2021 07:01 Bílaverksmiðja Nissan í Mexíkó. Þegar þú sest upp í bílinn þinn að morgni til þá hugsar þú sennilega ekki um öll hráefnin sem notuð eru við framleiðslu bílsins. Þá sérstaklega málminn sem notuð er í undirvagn og byggingu bílsins. Mikill magnesíum skortur mun hugsanlega þvinga allar bílaverksmiðjur til að hætta framleiðslu fyrir lok árs, samkvæmt sérfræðingum.
Fæst okkar hugsa um magnesíum í daglegu lífi en það er afar mikilvægt efni í framleiðslu bíla. Magnesíum er notað í mörgum álblöndum, aðallega 5XXX, 6XXX og 7XXX blöndunum. Þessar blöndur eru notaðar þar sem mikill styrkur er nauðsynlegur og léttleikinn er mikilvægur, til að mynda: Yfirbygging Eldsneytistankur Bremsur Vélarblokkir Stífur Öxlar Felgur Ýmsar festingar Í raun er ekki hægt að smíða bíl í dag án áls. Það er ekki hægt að nota ál án magnesíums. Í desember má vera að magnesíum verði orðið af afar skornum skammti. Amos Fletcher, greinandi hjá Barclays hefur sagt að „ef magnesíum birgðir klárast, þá mun allur bílaiðnaðurinn mögulega stöðvast.“ Kína er í miðri orkukrísu, verksmiðjum hefur verið lokað til að spara orku. Því miður fyrir bílaiðnaðurinn háður magnesíum og Kína er stærsta framleiðsluland magnesíums í heiminum. 85% af magnesíum heimsins kemur frá Kína. Yulin er stærsti magnesíum-framleiðslu bærinn í Kína. Nýlega fyrirskipuðu yfirvöld 35 af 50 magnesíum framleiðslum að loka og þeim 15 sem eftir eru hefur verið gert að minnka framleiðslu um 50%. Evrópskar birgðir af magnesíum munu klárast í lok nóvember ef áætlanir ganga eftir. Staðan er ögn skárri í Bandaríkjunum, vandinn er ekki alveg á sama skala og í Kína. Bandaríkin eru stór í framleiðslu magnesíum og svo lengi sem það gengur eftir að koma magnesíum þá ná framleiðendur að búa til hálfleiðara og með því að halda framleiðslu gangandi. Á meðan skorturinn er að raungerast er ljóst að engin skyndilausn er í augsýn. Vonandi lagast það þó hratt en veturinn lítur ekki vel út eins og er.
Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent