Mælir með því að fólk leyfi öðrum að versla í matinn fyrir sig Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 19. október 2021 09:01 Ásgerður Guðmunds hjá Vinnuheilsu er reglulega gestur á FM957. Aðsent „Streita er viðbrögð fólks við áreiti og álagi. Það fyrsta sem við þurfum að hugsa um eru venjur, hvaða venjur eru í lífi okkar?“ segir Ásgerður Guðmundsdóttir hjá Vinnuheilsu. Hún var í viðtali hjá Ósk Gunnars á FM957 og gaf þar nokkur góð ráð varðandi streitu. „
Það getur verið ótrúleg hvíld í því að vera með venjur en þær geta líka verið slæmar. Slæmu venjurnar geta fleytt okkar á ákveðna staði en svo er utanaðkomandi áreiti sem getur valdið okkur streitu.“ Nefnir hún sem dæmi flutninga, ástvinamissi, hjónaskilnað, veikindi, samfélagsmiðla, atvinnumissi og fleira þess háttar. „Þegar streita fer að herja á mann, þá eru þetta ákveðnar viðvörunarbjöllur sem að við þurfum að vera á varðbergi með.“ Einkennin geta verið mismunandi, vöðvabólga er aðeins eitt af þeim. „Við finnum það þegar við verðum kvíðin, að það verður ákveðin heilaþoka og við verðum gleymin. Hjartað, þá er það til dæmis hár blóðþrýstingur, hátt kólesteról. Meltingin fer öll úr skorðum, við förum að finna fyrir harðlífi, niðurgangi, bólgum eða eitthvað slíkt. Frjósemi, það minnkar hormónastarfsemi. Svo eru það vöðvar og liðir, við förum að spennast öll upp og það er bólgumyndun og við förum að finna fyrir verkjum.“ Í viðtalinu nefnir Ásgerður nokkur góð ráð gegn streitu. „Góður svefn, hvíld, hreyfing, næring. Það er ekkert að ætla sér um of, taka þessu litlu skref.“ Varðandi næringuna segir hún að fólk ætti jafnvel að íhuga að fá einhvern annan til að versla inn í matinn fyrir sig. „Því við þurfum að fá eitthvað holt að borða. Þú kaupir alltaf það sama að borða og setur það sama í körfuna. Þegar þú ert í streitu og vilt bara draga fyrir gardínurnar, fáðu aðra líka til að aðstoða þig.“
Heilsa FM957 Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið