Sú markahæsta áfram á Selfossi: Staður sem mér finnst eins og heimili að heiman Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. september 2021 09:58 Brenna Lovera er hæstánægð að vera áfram á Selfossi. selfoss Brenna Lovera, markahæsti leikmaður Pepsi Max-deildar kvenna, hefur framlengt samning sinn við Selfoss um tvö ár. Brenna hefur skorað þrettán mörk í fjórtán deildarleikjum í sumar og er með tveggja marka forskot á Valskonuna Elínu Mettu Jensen í baráttunni um gullskóinn. Þá skoraði hún tvö mörk í tveimur leikjum í Mjólkurbikarnum. Hin 24 ára Brenna kom til Selfoss frá Boavista í Portúgal fyrir þetta tímabil. Hún lék með ÍBV seinni hluta sumars 2019 og skoraði þá sex mörk í níu deildarleikjum. Í fréttatilkynningu frá Selfossi kveðst Brenna kunna afar vel við sig á Selfossi og er ánægð með að hafa skrifað undir nýjan samning. „Þetta er búið að vera gott tímabil. Selfoss er frábært félag með jafnvel enn betra samfélag á bakvið sig. Ég er mjög spennt fyrir því að framlengja samninginn minn á stað sem mér finnst vera eins og heimili að heiman. Ég get ekki beðið eftir því að byggja ofan á það sem við höfum gert á þessu tímabili,“ sagði Brenna. Selfyssingar eru í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar með 25 stig. Selfoss fær botnlið Tindastóls í heimsókn á laugardaginn og mætir svo Íslandsmeisturum Vals í lokaumferðinni sunnudaginn 12. september. Alfreð Elías Jóhannsson lætur af störfum hjá Selfossi eftir tímabilið. Hann hefur stýrt því undanfarin fimm ár.
Brenna hefur skorað þrettán mörk í fjórtán deildarleikjum í sumar og er með tveggja marka forskot á Valskonuna Elínu Mettu Jensen í baráttunni um gullskóinn. Þá skoraði hún tvö mörk í tveimur leikjum í Mjólkurbikarnum. Hin 24 ára Brenna kom til Selfoss frá Boavista í Portúgal fyrir þetta tímabil. Hún lék með ÍBV seinni hluta sumars 2019 og skoraði þá sex mörk í níu deildarleikjum. Í fréttatilkynningu frá Selfossi kveðst Brenna kunna afar vel við sig á Selfossi og er ánægð með að hafa skrifað undir nýjan samning. „Þetta er búið að vera gott tímabil. Selfoss er frábært félag með jafnvel enn betra samfélag á bakvið sig. Ég er mjög spennt fyrir því að framlengja samninginn minn á stað sem mér finnst vera eins og heimili að heiman. Ég get ekki beðið eftir því að byggja ofan á það sem við höfum gert á þessu tímabili,“ sagði Brenna. Selfyssingar eru í 4. sæti Pepsi Max-deildarinnar með 25 stig. Selfoss fær botnlið Tindastóls í heimsókn á laugardaginn og mætir svo Íslandsmeisturum Vals í lokaumferðinni sunnudaginn 12. september. Alfreð Elías Jóhannsson lætur af störfum hjá Selfossi eftir tímabilið. Hann hefur stýrt því undanfarin fimm ár. Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild kvenna UMF Selfoss Mest lesið Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn „Stundum þarf maður heppni“ Enski boltinn „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Viktor Bjarki skoraði enn eitt markið Fótbolti „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Enski boltinn Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Körfubolti Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira