FIFA biður um undanþágu fyrir leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. ágúst 2021 18:01 Gianni Infantino, forseti FIFA, biðlar til allra innan sambandsins að sýna samstöðu. Gianni Infantino, forseti alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, hefur beðið Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um undanþágu frá sóttkví fyrir leikmenn ensku úrvlsdeildarinnar svo að þeir geti tekið þátt í landsliðsverkefnum í byrjun næsta mánaðar.
Í gær var greint frá því að félögin innan ensku úrvalsdeildarinnar hafi tekið einhliða ákvörðun þess efnis að hleypa leikmönnum sínum ekki í landsliðsverkefni ef þeir þurfa að ferðast til landa á rauðum lista bresku ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt sóttvarnarreglum í Bretlandi þyrftu þeir þá að fara í tíu daga sóttkví við komuna aftur til landsins. Félög á Spáni eru sömu skoðunnar og þau á Bretlandseyjum, en Infantino segist hafa stungið upp á svipaðri lausn og í kringum Evrópumótið í sumar við forsætisráðherra Bretlands. Þá gátu svokallaðir „VIP“ einstaklingar mætt á leiki á Evrópumótinu án þess að þurfa að fara í sóttkví. „Ég hef stungið upp á lausn sem er svipuð og var notuð í kringum seinni hluta Evrópumótsins í sumar,“ sagði Infantino. „Við höfum gengið saman í gegnum erfiðleika um heim allan áður, og verðum að gera það áfram.“ „Ég biðla til allra innan FIFA, allra deilda, og allra félaga, að sýna samstöðu og gera það sem er rétt og réttlátt fyrir leikinn.“
Enski boltinn Fótbolti FIFA Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda Fótbolti „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Körfubolti „Get ekki beðið um mikið meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Sjá meira