Veður

All­víða skýjað við ströndina og þoku­loft á köflum

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður yfirleitt á bilinu tólf til tuttugu stig í dag.
Hiti verður yfirleitt á bilinu tólf til tuttugu stig í dag. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir vestlægri eða breytilegri átt, þremur til átta metrum á sekúndu í dag. Birtir upp inn til landsins, en allvíða verður skýjað við ströndina og þokuloft á köflum.

Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði yfirleitt tólf til tuttugu stig, hlýjast í innsveitum.

Á morgun verður vestan og norðvestan þrír til tíu metrar á sekúndu. Skýjað að mestu og líkur á dálítilli vætu í flestum landshlutum. Kólnar lítillega.

Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Vestan og norðvestan 3-10 m/s. Skýjað og súld eða dálítil rigning með köflum, en þurrt á suðaustanverðu landinu. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á miðvikudag og fimmtudag: Breytileg átt 3-8. Skýjað að mestu á landinu og líkur á lítilsháttar vætu í flestum landshlutum. Hiti víða 12 til 18 stig.

Á föstudag og laugardag: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað en úrkomulítið sunnanlands og með austurströndinni. Bjart með köflum annars staðar, en smáskúrir á stöku stað síðdegis. Hiti 10 til 18 stig, svalast austast.

Á sunnudag: Hæg breytileg átt, bjart með köflum og þurrt að mestu. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×