Veður

Léttir víðast til og hiti að tuttugu stigum

Atli Ísleifsson skrifar
Þurrt og bjart verður á Suður- og Vesturlandi á morgun.
Þurrt og bjart verður á Suður- og Vesturlandi á morgun. Vísir/Vilhelm

Landsmenn mega reikna með rólegri norðlægri átt í dag og dátítilli rigningu á Austfjörðum. Léttir víða til í öðrum landshlutum, fyrst sunnan- og vestanlands.

Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Hiti verður á bilinu tíu til tuttugu stig þar sem hlýjast verður sunnan heiða.

„Norðan gola eða kaldi á morgun og lítilsháttar væta norðaustantil, en þurrt og bjart á Suður- og Vesturlandi.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðan og norðvestan 5-10 m/s. Bjartviðri S- og V-lands, en dálítil rigning um tíma á N- og A-landi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast sunnan heiða.

Á sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-8. Víða léttskýjað um A-vert landið, en skýjað og súld með köflum V-til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast eystra.

Á mánudag: Vestlæg átt, bjart veður og hlýtt, en skýjað V-lands.

Á þriðjudag og miðvikudag: Breytileg átt, skýjað og súld eða rigning öðru hverju. Hiti 10 til 17 stig.

Á fimmtudag: Útlit fyrir suðvestanátt með lítilsháttar vætu á V-verðu landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×