„Auðvitað er þetta ekki þannig að veiran verði látin geisa hér yfir allt“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. ágúst 2021 20:26 Þórólfur Guðnason er sóttvarnalæknir Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að það sé ekki stefnan að láta kórónuveiruna „geisa hér yfir allt“, þrátt fyrir orð hans í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun um nú þyrfti að „reyna að ná þessu hjarðónæmi með því að láta veiruna einhvern veginn ganga“.
Þetta kom fram í viðtali RÚV við Þórólf í kvöldfréttum klukkan sjö í kvöld þar sem hann var spurður út í orð hans í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun, þar sem Þórólfur fór yfir stöðu faraldursins hér á landi og næstu skref. Viðtalið vakið mikla athygli Orð hans í þættinum vöktu mikla athygli, ekki síst svar hans við spurningu þáttastjórnandans Frosta Logasonar eftir að Þórólfur hafði farið yfir áhrif bólusetningar hér á landi, sem hann sagði morgunljóst að kæmi í veg fyrir alvarleg veikindi. „En ég hefði svo gjarnan viljað að bólusetningin hefði komið í veg fyrir smit en þannig er bara staðan og þá þurfum við bara að stokka upp spilin og leggja upp ný plön, það er bara ekkert öðruvísi.“ Þannig að það er óhætt að segja að þetta svokallaða hjarðónæmi, því verður ekki náð nema með því að meirihluti þjóðarinnar 75-85 prósent af þjóðinni smitast? „Við náttúrulega getum í raun og veru ekki gert annað þannig að okkar áskorun núna er það, nú erum við búin að bólusetja svona marga. Áskorun okkar núna er sú að reyna að gefa fleiri skammta, örvunarskammta þeim við teljum að hafi kannski svarað bólusetningunni illa og eru þess vegna í verri stöðu gagnvart þessu smiti. Það má ekki gleyma því af þetta delta-afbrigði er miklu meira smitandi en fyrri afbrigði og það veldur alvarlegri sjúkdómi,“ sagði Þórólfur. Sagði hann í kjölfarið að finna þyrfti einhvers konar milliveg. „Við þurfum því að reyna að bólusetja og verja þá betur, þessa sem eru viðkvæmir fyrir en láta okkur lynda það að sýkingin smiti aðra. Það eru náttúrulega flestir sem fá þetta vægt og öðlast þannig gott ónæmi. Við þurfum einhvern veginn að sigla þannig á milli skers og báru núna í þessu, að fá ekki of mikið af alvarlegum veikindum þannig að spítalakerfið riði til falls en samt reyna að ná þessu hjarðónæmi með því að láta veiruna einhvern veginn ganga. Það er ekkert takmark núna í sjálfu sér að útrýma veirunni eða losa hana alveg úr samfélaginu. Við munum þá á bara öðrum tímapunkti fá hana einhvern veginn inn. Þannig að við þurfum einhvern veginn að reyna að sigla þetta og spila þetta þannig að við fáum sem mesta út úr öllu,“ sagði Þórólfur. Heyra má kaflann úr Sprengisandi þar sem þessi orðaskipti fóru fram hér að neðan, auk þess sem að hlusta má á allt viðtalið neðst í fréttinni. Í kvöldfréttum RÚV í kvöld var rætt stuttlega við Þórólf þar sem hann fór yfir þessu ummæli. Vísaði hann því þar á bug að til stæði að láta faraldurinn geisa hér, þrátt fyrir að hann hafi í Sprengisandi sagt að það þyrfti að „reyna að ná þessu hjarðónæmi með því að láta veiruna einhvern veginn ganga.“ „Þetta er allavegana ekki alveg rétt, hvort sem að ég hef sagt þetta ekki alveg nógu skýrt eða hvort tilvitnunin er eitthvað skrýtin. Auðvitað er þetta ekki þannig að veiran verði látin geisa hér yfir allt, það hefur aldrei verið stefnan,“ sagði Þórólfur við fréttamann RÚV. „Þannig að það er ekki lengur takmarkið að ná þessu hjarðónæmi?,“ var hann spurður. „Takmarkið er að ná hjarðónæmi á einn eða annan máta, annað hvort með bólusetningu. Við höfum reynt það. Helmingur af þeim sem eru bólusettir eru ónæmir þannig að við náum hjarðónæmi hjá þeim. Til þess að að ná hjarðónæmi í samfélagið þá þurfa fleiri að vera ónæmir gegn veirunni og það er þá ekki hægt að gera það öðruvísi heldur en að bólusetja betur eins og við erum að gera með þriðja skammti, endurbólusetja þá sem eru viðkvæmastir þannig að við getum náð því á margan á annan máta heldur en að segja: nú látum við bara veiruna ganga lausa um samfélagið. Það hefur enginn sagt. Ég hef alltaf sagt það að við þurfum að vera með einhvers konar takmarkanir, bæði á landamærum og eins innanlands og svo erum við með þessar bólusetningar,“ sagði Þórólfur sem bætti einnig við möguleikanum á nýjum bóluefnum og endurbólusetningum sem vopnum gegn faraldrinum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Sprengisandur Tengdar fréttir Ná þurfi hjarðónæmi með því að láta veiruna ganga Sóttvarnalæknir telur að nú verði að reyna að ná fram hjarðónæmi gegn kórónuveirunni með því að láta hana ganga áfram, en reyna að koma í veg fyrir alvarleg veikindi með því að hlífa viðkvæmum hópum. Hann segir markmiðið á þessum tímapunkti ekki geta verið að útrýma veirunni úr samfélaginu. 8. ágúst 2021 12:13 Ekki viss um að hjarðónæmi sé besta leiðin Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, hefur efasemdir um ágæti þess að reyna að ná fram hjarðónæmi við Delta-afbrigði kórónuveirunnar. Verði það hins vegar stefnan sé mikilvægast að reyna að vernda viðkvæma hópa. 8. ágúst 2021 19:10 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Sjá meira
Ná þurfi hjarðónæmi með því að láta veiruna ganga Sóttvarnalæknir telur að nú verði að reyna að ná fram hjarðónæmi gegn kórónuveirunni með því að láta hana ganga áfram, en reyna að koma í veg fyrir alvarleg veikindi með því að hlífa viðkvæmum hópum. Hann segir markmiðið á þessum tímapunkti ekki geta verið að útrýma veirunni úr samfélaginu. 8. ágúst 2021 12:13
Ekki viss um að hjarðónæmi sé besta leiðin Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, hefur efasemdir um ágæti þess að reyna að ná fram hjarðónæmi við Delta-afbrigði kórónuveirunnar. Verði það hins vegar stefnan sé mikilvægast að reyna að vernda viðkvæma hópa. 8. ágúst 2021 19:10