Frakkar í úrslit á fjórðu Ólympíuleikunum í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. ágúst 2021 09:34 Nikola Karabatic er kominn í enn einn úrslitaleikinn með franska landsliðinu. epa/TATYANA ZENKOVICH Frakkland er komið í úrslit í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir sigur á Egyptalandi, 27-23.
Þetta er í fjórða sinn í röð sem Frakkar komast í úrslit á Ólympíuleikunum. Þeir urðu Ólympíumeistarar 2008 og 2012 en töpuðu fyrir Dönum í úrslitaleiknum 2016. Staðan í hálfleik var jöfn, 13-13, en í seinni hálfleik voru Frakkar sterkari. Þeir léku öfluga vörn og Vincent Gerard varði vel í markinu. Í stöðunni 18-18 skoraði Frakkland þrjú mörk í röð og leit ekki um öxl eftir það. Egyptaland átti í miklum erfiðleikum í sókninni og skoraði aðeins tíu mörk í seinni hálfleik. Þegar uppi var staðið munaði fjórum mörkum á liðunum, 27-23, og Frakkar því komnir í úrslit. Þar mæta þeir sigurvegaranum úr leik Dana og Spánverja sem hefst á hádegi. Örvhentu skyttur Frakklands, þeir Nedin Remili og Dika Mem, voru í miklum ham og skoruðu samtals sextán mörk, Remili níu og Mem sjö. Nikola Karabatic og Hugo Descat skoruðu fjögur mörk hvor. Gerard varði tæplega tuttugu skot í franska markinu. Yahia Omar skoraði sex mörk fyrir Egyptaland og Ali Zein og Yehia El-Deraa sitt hvor fimm mörkin.
Handbolti Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira