Þetta eru fyrstu verðlaun San Marinó á Ólympíuleikum en landið er það fámennasta sem hefur unnið Ólympíuverðlaun í sögunni.
Rúmlega 33 þúsund manns búa í smáríkinu San Marinó. Þrátt fyrir það á það fimm keppendur á Ólympíuleikunum. Tvo í skotfimi, einn í sundi, einn í glímu og einn í júdó.
Perilli er á sínum öðrum Ólympíuleikum en hún keppti einnig í Ríó 2016. Þá komst hún ekki í úrslit. Perilli á enn eftir að keppa í tvenndarleik í skotfimi í Tókýó ásamt Gian Marco Berti.
Auk þess að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum á Perilli bronsmedalíur frá HM og EM í safni sínu.