Innlent

Segir hags­muni ferða­þjónustunnar líka hags­muni þjóðarinnar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Egill

Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaþjónustuna hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum eftir að tilkynnt var að bólusettir ferðamenn yrðu krafðir um neikvætt Covid-19 próf við landamærin. Hagsmunir ferðaþjónustunnar séu ekki aðeins hennar, heldur þjóðarinnar allrar.

„Hagsmunir ferðaþjónustunnar eru gríðarlegir í efnahagslegu tilliti fyrir þjóðarbúið og alla þjóðina. Þannig að það er ekki eins og þetta snúist um ferðaþjónustuna annars vegar og þjóðina hins vegar,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF).

Bjarnheiður ræddi nýjar takmarkanir á landamærunum og áhrif þeirra á ferðaþjónustuna í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir allar takmarkanir á landamærum hafa letjandi áhrif á ferðaþjónustuna en enn eigi eftir að koma í ljós hver áhrif nýrra takmarkana verða.

„Við vitum að allar svona takmarkanir hafa letjandi áhrif og geta jafnvel komið í veg fyrir að fólk bóki ferðir eða fái grundvallaða ástæðu til að afbóka feðrir sem það er að fara í en við vonum að það sé ekki þannig,“ segir Bjarnheiður.

Breytingarnar voru tilkynntir í gær og munu taka gildi næsta mánudag. Allir ferðamenn, sama hvort þeir eru bólusettir eða staðfesta fyrri sýkingu, munu þurfa að framvísa neikvæðu PCR eða antigen hraðprófi sem ekki er eldra en 72 klukkustunda gamalt.

Bjarnheiður segir nýjar takmarkanir ekki endilega jákvæðar, en borið hefur á því að ferðaþjónustan hafi vart ráðið við þann fjölda ferðamanna sem hingað hefur sótt undanfarnar vikur.

„Það hafa komið nokkrir flöskuhálsar á ákveðnum sviðum en ég hef nú trú á því að við myndum leysa úr því eins og flestum áskorunum sem okkur hafa mætt í gegn um tíðina,“ segir Bjarnheiður.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, lýsti miklum vonbrigðum með nýjar takmarkanir í gær. Hann segir marga forsvarsmenn ferðaþjónustufyrirtækja með kjálkann í gólfinu.

„Þeim finnst bara hreinlega óskiljanlegt að það skuli vera lagt í svona ákvarðanir og telja að þetta muni hafa töluverð neikvæð áhrif,“ sagði Jóhannes Þór í samtali við fréttastofu í gær.

Bjarnheiður tekur undir þetta og segir ferðaþjónustuna finna fyrir miklum vonbrigðum með það að stíga hafi þurft skref til baka. Þó sé fólk ánægt með að antigen prófin séu tekin gild.

„Jafnframt er fólk ánægt með það að það skuli þó vera tekin gild þessi antigen próf. Ef það hefðu bara verið þessi PCR próf sem hefðu verið tekin gild hefði það verið miklu alvarlegra. Bæði þar sem það er bæði dýrara að fá þau og erfitt að nálgast þau. Það er ekki víst að fólk hefði náð þeim fyrir ferðina sína þannig að það er jákvætt. Þetta er ekki alls staðar eins aðgengilegt og þetta er hér.“


Tengdar fréttir

Hertar að­­gerðir í ó­sam­ræmi við traust á bólu­­setningum

Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra óttast að að­gerðir innan­lands verði hertar á ný þegar tilefni til þess sé ekki endilega til staðar. Hún virðist ekki sannfærð um réttmæti þeirra aðgerða á landamærunum sem kynntar voru í dag.

Tals­vert veikir í far­sóttar­húsi þrátt fyrir bólu­setningu

Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af sjö utan sóttkvíar. Mjög hefur fjölgað í farsóttarhúsi síðustu daga en á fjórða tug eru þar í einangrun vegna kórónuveirusmits. Forstöðumaður segir að fólkið sé talsvert veikt, þrátt fyrir bólusetningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×