„Ríkasti dómari heims“ fékk úrslitaleik EM Sindri Sverrisson skrifar 9. júlí 2021 11:45 Björn Kuipers hefur staðið sig það vel í sínum þremur leikjum til þessa á EM að hann fær að dæma úrslitaleikinn. EPA/David Ramos Hollendingurinn Björn Kuipers fær það eftirsótta hlutverk að dæma úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta á sunnudagskvöld, á milli Englands og Ítalíu á Wembley. Kuipers, sem er 48 ára gamall, verður fyrsti Hollendingurinn sem fær að dæma úrslitaleik á EM. Hann hefur verið kallaður „ríkasti dómari heims“ eftir að hafa tekið þátt í stofnun matvöruverslanakeðju í heimalandinu. Samkvæmt Daily Mail var hann metinn á 11,5 milljónir punda árið 2016. Þessi margreyndi dómari hefur áður dæmt leik Englands og Ítalíu á stórmóti en það var á heimsmeistaramótinu í Brasilíu árið 2014. Liðin mættust þá í riðlakeppninni og vann Ítalía 2-1 sigur, en bæði lið sátu eftir í riðlinum á meðan að Kosta Ríka og Úrúgvæ komust áfram. Kuipers hefur dæmt þrjá leiki á EM til þessa. Hann dæmdi í 2-1 sigri Belgíu gegn Danmörku, 5-0 sigri Spánar gegn Slóvakíu og svo 2-1 sigri Danmerkur gegn Tékklandi í átta liða úrslitum. Kuipers hefur áður dæmt úrslitaleiki fyrir UEFA. Hann dæmdi úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2014, á milli Real Madrid og Atlético Madrid, og úrslitaleiki Evrópudeildarinnar árið 2013 og 2018.
Kuipers, sem er 48 ára gamall, verður fyrsti Hollendingurinn sem fær að dæma úrslitaleik á EM. Hann hefur verið kallaður „ríkasti dómari heims“ eftir að hafa tekið þátt í stofnun matvöruverslanakeðju í heimalandinu. Samkvæmt Daily Mail var hann metinn á 11,5 milljónir punda árið 2016. Þessi margreyndi dómari hefur áður dæmt leik Englands og Ítalíu á stórmóti en það var á heimsmeistaramótinu í Brasilíu árið 2014. Liðin mættust þá í riðlakeppninni og vann Ítalía 2-1 sigur, en bæði lið sátu eftir í riðlinum á meðan að Kosta Ríka og Úrúgvæ komust áfram. Kuipers hefur dæmt þrjá leiki á EM til þessa. Hann dæmdi í 2-1 sigri Belgíu gegn Danmörku, 5-0 sigri Spánar gegn Slóvakíu og svo 2-1 sigri Danmerkur gegn Tékklandi í átta liða úrslitum. Kuipers hefur áður dæmt úrslitaleiki fyrir UEFA. Hann dæmdi úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu árið 2014, á milli Real Madrid og Atlético Madrid, og úrslitaleiki Evrópudeildarinnar árið 2013 og 2018. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Holland Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Sjá meira