Lífið

Hikar ekki við að hringja í fólk með reynslu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Fida Abu Libdeh, stofnandi og eigandi Geosilica.
Fida Abu Libdeh, stofnandi og eigandi Geosilica. Vísir/Vilhelm

Fida Abu Libdeh orku- og umhverfistæknifræðingur er frumkvöðull með meiru. Fida er stofnandi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins GeoSilica, sem býr til fæðubótarefni úr affallsvatni frá jarðhitavirkjunarinnar Hellisheiðarvirkjun.

Fida stofnaði GeoSilica árið 2012 í Frumkvöðlasetrinu á Ásbrú á Keflavíkurflugvelli. Hún er þekkt fyrir kjark og þor og segir í viðtali í hlaðvarpsþættinum Normið, að heiðarleiki sé gríðarlega mikilvægur eiginleiki. Hún segir að hér á landi ætti fólk að leita enn meira í þekkingu eldra fólks og fólks í atvinnulífinu sem hefur reynslu á ákveðnum sviðum.

„Ég hringi í fólk sem er með reynslu og spara mér tíu ár af mistökum og tíma, með því að taka bara eitt símtal,“ segir Fida.

„Þau eru búin að fara í gegnum þetta. Við myndum komast miklu lengra með því að byggja ofan á þetta í stað þess að byrja upp á nýtt.“

Fida er þakklát fyrir að upptekið fólk gefi sér tíma til þess að ræða við hana og gefa ráð.

„Þetta er svo dýrmætt.“

Fida kom 16 ára frá Palestínu, gekk í menntaskóla í Reykjavík en náði ekki að ljúka stúdentsprófi vegna erfiðleika með íslenskuna. Hún vildi mennta sig meira og gera meira á lífsleiðinni en var komin í öngstræti þegar hún uppgötvaði háskólabrú í Keili á Ásbrú. Í kjölfarið fór hún í háskólanám hér á landi. Í þættinum fer hún yfir ferilinn og gefur dýrmæt ráð um frumkvöðlastarf og atvinnulífið.

Fida hlaut FKA Hvatningarviðurkenninguna 2021, fyrir að vera góð fyrirmynd fyrir konur í atvinnulífinu.

Viðtalið í heild sinni má heyra í þættinum hér fyrir neðan. 

Hlaðvarpsþættirnir Normið birtast vikulega hér á Vísi og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Settu follow í hlaðvarpsappinu þínu og þá sérðu alltaf þegar nýr þáttur mætir á svæðið. Þáttastjórnendur eru Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjóns, athafnakonur og þjálfarar. Hægt er að fylgjast með þeim á Instagram síðunni @normið og HÉR á Vísi.




Tengdar fréttir

„Það er alltaf pláss fyrir þig“

Fjölmiðlakonan og matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran segir að flutningar á milli landshluta og landa í æsku hafi verið mikilvæg reynsla í því að aðlagast og þurfa að bjarga sér. Hún þurti reglulega að komast inn í nýja vinahópa og ný fótboltalið. 

Svona kemst þú upp úr hjólfarinu og tekur skref áfram

„Okkar mesti veikleiki er þegar við gefumst upp, besta leiðin til að ná árangri er að reyna einu sinni enn,“ er tilvitnun nýjasta þáttar Normsins. Tilvitnunina á Thomas Edison. Umræðuefni þáttarins er að taka skref áfram í átt að framtíðinni.

„Ef einhver getur grætt á þessu þá er tilganginum náð“

Sylvía Briem Friðjónsdóttir og Eva Mattadóttir halda úti hlaðvarpinu Normið. Þær kynntust þegar þær störfuðu báðar sem þjálfarar hjá Dale Carnegie og í dag ná þær til þúsunda einstaklinga í gegnum hlaðvarpið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.