Erlent

Ákúrur Kim kveikja áhyggjur af faraldri í Norður-Kóreu

Kjartan Kjartansson skrifar
Kim Jong-un ávarpar forsætisrnefnd Verkamannaflokks Norður-Kóreu, Þar úthúðaði hann hátt settum embættismönnum fyrir vanhæfni, ábyrgðarleysi og sinnuleysi í glímunni við faraldurinn.
Kim Jong-un ávarpar forsætisrnefnd Verkamannaflokks Norður-Kóreu, Þar úthúðaði hann hátt settum embættismönnum fyrir vanhæfni, ábyrgðarleysi og sinnuleysi í glímunni við faraldurinn. AP/Ríkisfréttastofa Norður-Kóreu

Kimg Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, skammaði hátt setta embættismenn fyrir örlagarík mistök í að kom í veg fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar sem hafi valdið „miklu neyðarástandi“. Orð Kim eru talin vísbending um að veiran leiki landið nú grátt.

Takmarkaðar upplýsingar um ástanda mála í Norður-Kóreu berast út fyrir landamæri ríkisins. Norður-kóresk stórnvöld hafa reynt að halda því fram að engin kórónuveirutilfelli hafi greinst þar þrátt fyrir að landið deili landamærum við Kína. Því reyna sérfræðingar að rýna í opinber ummæli líkt og þau sem ríkisfjölmiðill Norður-Kóreu hafði eftir Kim í dag. 

Ekki kom þó fram í umfjöllun hans hver þessi örlagaríku mistök hefðu verið. Þau voru Kim þó tilefni til þess að kalla saman forsætisnefnd Verkamannaflokksins. 

Kim sagði þar að „hátt settir embættismenn sem voru yfir mikilvægum málefnum ríkisins hefðu vanrækt að framfylgja mikilvægum ákvörðunum flokksins um að grípa til skipulagslegra, stofnanalegra, efnislegra, vísindalegra og tæknilegra aðgerða líkt og viðvarandi neyðarástand vegna faraldursforvarna krefst“.

Munu aldrei viðurkenna smit

Sérfræðingarnir telja þetta benda til þess að ástand faraldursins sé slæmt. Hong Min, greinandi hjá Þjóðareiningarstofnun Kóreu í Seúl í Suður-Kóreu, segir ummæli Kim benda til þess að hann ætli mögulega að gera Kim Tok Hun, forsætisráðherra, ábyrgan fyrir klúðri stjórnvalda og skipta honum út.

„Það er ekki möguleiki að Norður-Kórea viðurkenni nokkru sinni smit, jafnvel þó að það almenn útbreiðsla, upplýsir norðrið alls ekki um slíka þróun og heldur áfram að halda á lofti veiruvörnum sem þau fullyrða að séu þær bestu,“ segir Hong við AP-fréttastofuna.

Eðli ummæla Kim telur hann benda til að eitthvað stór hafi gerst, hvort það sé útbreitt smit kórónuveirunnar eða að stór hópur fólks hafi verið útsettur fyrir smiti.

Aðrir sérfræðingar telja þó mögulegt að Kim sé ósáttur við smygl um landamærin eða að hann hyggi á uppstokkun í stjórn sinni til að treysta völd sín.

Norður-Kórea lokaði landamærum sínum þegar faraldurinn hófst. Lokunin ásamt viðskiptaþvingunum hefur leitt til matvælaskorts og efnahagskreppu. Kim gekkst við því nýlega að matarskortur væri í landinu og sagði landsmönnum að búa sig undir sögulega slæmar afleiðingar sem breska ríkisútvarpið BBC segir að hafi virst vísun í mannskæða hungursneyð í landinu á 10. áratug síðustu aldar.


Tengdar fréttir

Segja al­þýðuna miður sín yfir þyngdar­tapi Kim

Á meðan hungur­sneyð ríkir í Norður-Kóreu greinir ríki­smiðillinn, sem lýtur stjórn ríkis­­stjórnarinnar, frá því að al­þýðan hafi á­hyggjur af þyngdar­tapi leið­­toga síns, Kim Jong Un.

Þyngdartap Kim vekur upp spurningar um heilsu hans

Nýlegar myndir benda til þess að Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafi grennst töluvert að undanförnu. Þær hafa vakið miklar vangaveltur um heilsufar leiðtogans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×