Veður

Gular við­varanir og út­lit fyrir lægða­gang næstu daga

Atli Ísleifsson skrifar
Vindaspáin fyrir klukkan 18 í dag. Hvasst verður sunnan og suðvestanlands þegar líður á daginn.
Vindaspáin fyrir klukkan 18 í dag. Hvasst verður sunnan og suðvestanlands þegar líður á daginn. Veðurstofan

Undanfarnar vikur hefur öflugt hæðarsvæði staðsett fyrir norðan og norðaustan land stjórnað veðrinu og haldið lægðum frá landinu en núna hefur hæðin gefið eftir og útlit fyrir nokkurn lægðagang næstu daga.

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hvassviðris á Suðurlandi, Faxaflóa og á Miðhálendinu, en þær taka gildi á hádegi í dag og gilda til morguns. 

Er spáð suðaustanátta til fimmtán metrum á sekúndu en fimmtán til tuttugu metrum sunnan- og suðvestantil. Spáð er hita tíu til átján stig yfir daginn, hlýjast inntil landsins en heldur svalara austast.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að lægð dagsins sé búin að koma sér fyrir suðvestur af Reykjanesi og skil frá henni liggi yfir suðvesturhorni landsins.

„Nokkur vindur fylgir þeim og gular veðurviðvaranir taka gildi um og uppúr hádegi á Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendinu. Búast má við vind að 20 m/s á þessum svæðum og því geta aðstæður verið varhugaverðar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, líkt og húsbílar eða hjólhýsi. Einhver rigning fylgir vindinum og því von á því eitthvað blotni í gróðri og dragi úr eldhættu. Norðantil á landinu verður vindur á bilinu 8-15 m/s og að mestu bjart veður,“ segir á vef Veðurstofunnar. 

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út og taka gildi á hádegi.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Sunnan 8-13 m/s og víða dálítil væta en yfirleitt þurrt norðantil á landinu. Hiti 6 til 11 stig, en að 17 stigum fyrir norðan. Suðaustan 13-18 m/s og rigning sunnan- og vestanlands um kvöldið.

Á sunnudag: Sunnan 8-13 m/s og rigning. Hiti 5 til 10 stig. Þurrt að kalla norðaustantil á landinu og hiti að 15 stigum.

Á mánudag: Sunnan 8-13 m/s með skúrum, en þurru veðri um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Norðuausturlandi.

Á þriðjudag og miðvikudag: Sunnan og suðvestan átt og skúrir en úrkomulítið norðaustantil. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt og bjartviðri en lítilsháttar vætu vestantil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×