Erlent

Heilu fjölskyldurnar sagðar hafa þurrkast út

Samúel Karl Ólason skrifar
Heilt yfir hafa rúmlega 25 milljónir manna smitast af Covid-19 á Indlandi og nærri því 280 þúsund hafa dáið, svo vitað sé.
Heilt yfir hafa rúmlega 25 milljónir manna smitast af Covid-19 á Indlandi og nærri því 280 þúsund hafa dáið, svo vitað sé. AP/Anupam Nath

Yfirvöld á Indlandi opinberuðu í morgun metfjölda látinna, þó nýsmituðum fari fækkandi. 4.329 ný dauðsföll voru tilkynnt og rúmlega 260 þúsund nýsmitaðir. Covid-19 herjar nú á dreifðari byggðir landsins þar sem aðgengi að heilbrigðisþjónustu getur verið takmarkað.

Heilt yfir hafa rúmlega 25 milljónir manna smitast af Covid-19 á Indlandi og nærri því 280 þúsund hafa dáið, svo vitað sé. Sérfræðinga grunar að tölurnar séu í raun mun hærri.

Sérfræðingur sem AP fréttaveitan ræddi við sagði að undanförnum mánuði hefðu tilfelli rúmlega þrefaldast og dauðsföll sexfaldast. Skimun við Covid-19 hefði þó einungis aukist um sextíu prósent.

Eftir að hafa vakið gífurlegan usla í borgum Indlands er veiran nú sögð herja á dreifðari byggðir, þar sem aðgengi að heilbrigðisþjónustu getur verið mjög takmarkað.

Meirihluti íbúa veikur

Í þorpinu Basi, sem er skammt frá Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, búa til að mynda um 5.400 manns. Times of India segir að um þrír fjórðu íbúa þorpsins séu veikir og minnst þrjátíu hafi dáið á undanförnum þremur vikum.

Þá er þar engin heilbrigðisþjónusta og íbúar segja fólk vera að deyja vegna þess það hafi ekki aðgang að súrefni til að gefa alvarlega veikum. Reynt sé að flytja þá á sjúkrahús en það geti tekið allt að fjóra tíma og margir hafi ekki náð þangað í tæka tíð.

TOI segir sambærilegt ástand í þorpum víðsvegar um landið, þar sem Covid-19 hafi þurrkað út heilu fjölskyldurnar.

Miðillinn ræddi við embættismenn og íbúa víða um landið og margir sögðu umfang faraldursins á Indlandi enn meira en opinberar tölur segi til um. Þá hafi byggst upp reiði í garð yfirvalda á Indlandi, bæði í garð ríkisstjórnar Narendra Modi og í garð héraðsyfirvalda.

Níutíu saknað

Rúmlega níutíu manna er saknað eftir að fellibylurinn Tauktae gekk á land á Indlandi í gær og prammi sökk undan ströndum borgarinnar Mumbaí. Floti Indlands segir 177 hafa verið bjargað en um 270 manns hafi verið um borð í prammanum.

Í frétt BBC segir að minnst tólf hafi látið lífið vegna óveðursins á Indlandi.


Tengdar fréttir

Bólu­efni virki gegn ind­verska af­brigðinu

Fyrstu niðurstöður rannsókna benda til þess að bóluefni virki gegn indverska afbrigði kórónuveirunnar. Þetta sagði Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, þar sem indverska afbrigði veirunnar hefur verið að sækja í sig veðrið.

Gagnrýna Boris fyrir að hafa ekki lokað fyrr á Indland

Stjórnarandstaðan í Bretlandi er reið Boris Johnson forsætisráðherra fyrir að hafa ekki lokað á ferðalög frá Indlandi til Bretlands fyrr. Afbrigði Covid-19 sem greindist fyrst á Indlandi hefur greinst í nokkru magni á Bretlandseyjum. Sérfræðingar óttast að slaka á á sóttvörnum á Bretlandi á morgun.

Tilfellum fækkar á Indlandi en fjöldi látinna enn hár

Yfirvöld á Indlandi skráðu rúmlega fjögur þúsund dauðsföll vegna Covid-19 í morgun og höfðu 311.170 greinst smitaðir á undanförnum degi. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem dauðsföllum fækkar samkvæmt opinberum tölum og fjöldi nýsmitaðra hefur ekki verið lægri í rúmar þrjár vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×