Einnig verðum við í beinni útsendingu frá miðbænum og ræðum við veitingamann um afléttingar á samkomutakmörkunum og hvort þær breyti miklu í rekstrinum.
Í fréttatímanum fjöllum við um gróðurelda við gosstöðvarnar og sinubruna í Heiðmörk í dag. Einnig verður rætt við forstöðumann Stuðla um efnið Spice, sem fjögur prósent tólf til sextán ára barna hafa notað.
Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar kl. 18:30.
Kvöldfréttirnar eru nú í lokaðri dagskrá en áskrifendur geta horft á þær hér á stod2.is. Einnig er hægt að hlusta á fréttirnar á Bylgjunni hér í spilaranum fyrir ofan.