Lífið

Stúlkna­kór á Húsa­vík syngur í at­riði á Óskars­verð­launa­há­tíðinni

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Kvikmyndin EUROVISION SONG CONTEST: The Story of Fire Saga var að stórum hluta tekin upp á Húsavík en myndin var framleidd af Netflix.
Kvikmyndin EUROVISION SONG CONTEST: The Story of Fire Saga var að stórum hluta tekin upp á Húsavík en myndin var framleidd af Netflix. Elizabeth Viggiano/NETFLIX © 2020

Sautján stúlkur í fimmta bekk í Borgarhólsskóla á Húsavík munu syngja með sænsku söngkonunni Molly Sandén í tónlistarmyndbandi sem sýnt verður á Óskarsverðlaunahátíðinni í lok apríl. Líkt og kunnugt er hefur lagið Husavik – My home town úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story og Fire Saga verið tilnefnt til Óskarsverðlauna.

Vikublaðið greindi svo fyrst frá því í gær að óvenjuleg atburðarás hafi farið af stað þegar söngkonan Molly fékk ekki tímabundið atvinnuleyfi í Bandaríkjunum og getur þar af leiðandi ekki komið fram á hátíðinni þar sem til stóð að hún myndi flytja lagið. Þess í stað var ákveðið að taka upp myndband á Húsavík sem sýnt verður á hátíðinni. Molly er komin til landsins en framleiðslufyrirtækið True North framleiðir myndbandið í samstarfi við Netflix og Örlyg Hnefil Örlygsson.

Leikstjórinn Egill Arnar Egilsson, betur þekktur sem Eagle Egilsson, leikstýrir myndbandinu en tökur fara fram á Húsavík í dag. Krstján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, segir í samtali við Vikublaðið að til standi að hafa flugeldasýningu í atriðinu sem þurfti að fá undanþágu fyrir. Því megi íbúar Húsavíkur búast við því að verða varir við flugelda síðdegis í dag og eitthvað fram eftir kvöldi. Tökur munu fara fram á hafnarsvæðinu á Húsavík.

Vart ætti að fara fram hjá neinum að eitthvað mikið stendur til á Húsavík í dag en rauður dregill liggur nú niður eftir hluta Garðarsbrautar á Húsavík líkt og sjá má á þessari mynd sem Bæjarprýði ehf. deildi á Facebook í dag.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.