Rýmið á að nýtast allri fjölskyldunni og þar þarf að vera sjónvarp, píanó og vinnuaðstaða. Þegar Soffía Dögg mætti á heimilið var ljóst að rýmið væri stórt en ekki vel nýtt eins og staðan var þá.
„Vandamálið er að við erum með allt á einum stað einhvern veginn,“ útskýrði Berglind Ósk Kristjánsdóttir um fjölskylduherbergið sitt og Soffía Dögg tók undir.
„Það er svolítið eins og það sé vatnshalli á rýminu.“

Naggrísir barnanna voru með eigin einkasvítu svo nauðsynlegt var að þarfagreina rýmið. U-sófi var efst á óskalista fimm manna fjölskyldunnar og svo fékk Soffía Dögg lausar hendur við að skreyta.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og eins og alltaf mælum við með því að þið horfið á þáttinn áður en þið lesið áfram.
„Maður kyssir marga froska áður en maður kyssir prinsinn og það sama á við um sófana,“ segir Soffía Dögg þegar þær leita að rétta fjölskyldusófanum fyrir sjónvarpsrýmið. Fyrir valinu var stór og veglegur sófi, þar sem pláss er fyrir alla fjölskylduna.

Breytingarnar eru bara geggjaðar, þetta er bara allt annað rými,“ sagði Berglind þegar hún fékk að sjá fjölskylduherbergið eftir breytingarnar.
„Þetta er bara fullkomið og hlýleikinn er kominn. Þetta er bara um fram allt komið og við getum öll verið þarna niðri.“

„Þó að við séum ekki öll að gera sama hlutinn þá getum við öll verið á sama stað.“

Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús er hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.

Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+ efnisveituna.