Innlent

Mildir suðlægir vindar leika um landið

Kjartan Kjartansson skrifar
Suðvestlæg átt er talin munu færa gasmengun frá eldgosinu á Reykjanesi yfir norðanverðan Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðið í dag.
Suðvestlæg átt er talin munu færa gasmengun frá eldgosinu á Reykjanesi yfir norðanverðan Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðið í dag. Vísir/Vilhelm

Spáð er rigningu eða slyddu í flestum landshlutum í dag fyrir tilstilli lægðar vestur af landinu sem beinir mildum suðlægum vindum yfir landið. Búist er við því að gasmengun leggi yfir norðanverðan Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðið í dag.

Veðurstofan býst við suðaustan og austan 5-13 metrum á sekúndu og rigningu eða slyddu með köflum í dag. Úrkomulítið á þó að vera norðaustan lands. Draga á úr úrkomunni síðdegis ganga í norðaustan 10-15 m/s norðvestanlands. Hlýna á í veðri og verður hitinn á bilinu núll til sex gráður síðdegis.

Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að þegar lægðin fjarlægist á morgun verði líklega áfram austankaldi með lítilsháttar vætu syðst á landinu. Austan 8-13 m/s og hita á bilinu eitt til tíu stig er spáð, hlýjustu suðvestanlands.

Á þriðjudag á ný smálægð að myndast á Grænlandssundi og snýst vindur þá í suðvestanátt. Úrkoma verður með minnsta móti og áfram verður fremur hlýtt í veðri.

Gasmengun á norðanverðum Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu

Á gosstöðvunum á Reykjanesi er gert ráð fyrir suðaustan og sunnan 5-10 m/s og snjókomu með köflum. Hiti við frostmark. Áttin er þó suðvestlægari rétt ofan við jörð og búast má við gasmengun á norðanverðum Reykjanesskaga og á höfuðborgarsvæðinu.

Sunnan 5-10 m/s og slydda eða rigning með morgninum, en suðaustan 8-13 eftir hádegi. Hiti 2 til 5 stig.

Gasmengunina ætti því að leggja yfir Vatnsleysuströnd í fyrstu, en seinnipartinn yfir svæðið frá Vogum að Reykjanesbæ og vestur að Höfnum. Snýst í austan og norðaustan 5-10 og styttir upp um kvöldið, en mengunin berst þá í átt til Grindavíkur.

Lögregla og björgunarsveitir vakta gossvæðið frá hádegis til miðnættis í dag. Lokað verður inn á svæðið klukkan 21 og hefst rýming klukkan 23. Henni á að vera lokið fyrir miðnætti.

„Þeir sem ætla sér inn á svæðið fyrir kl. 12 í dag hafi það í huga að takmarkað eftirlit viðbragðsaðila er á svæðinu. Gossvæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Þá hefur gönguleið reynst mörgum erfið. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Hættusvæði við gosstöðvarnar hefur verið merkt inn á kort sem hægt er að nálgast á Facebook síðu lögreglu og á vedur.is, heimasíðu Veðurstofu Íslands,“ sagði í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×