Innlent

Fá falska öryggistilfinningu eftir fyrri skimun og gæta ekki að sér í sóttkví

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir aðstæður á landamærum hafa breyst upp á síðkastið; fleiri greinist nú í seinni landamæraskimun en áður og ljóst að sumir gæti ekki að sér í sóttkví.

Sjö greindust innanlands um helgina, þar af fimm í gær. Af þessum fimm voru þrír utan sóttkvíar. Ekki hefur enn tekist að rekja smitin, að sögn Þórólfs. Hann ítrekaði það í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag að þetta gæti þýtt að veiran væri útbreiddari í samfélaginu en áður var talið. Inntur eftir því hvort fjórða bylgjan væri hafin kvaðst Þórólfur ekki geta sagt til um það

„Ég veit það ekki en ég held að þetta geti orðið einhver hópsýking. Hvort menn kalla það bylgju eða ekki, það er aukaatriði, en það fer eftir því hvað þetta verður útbreitt. Þetta byrjar gjarnan svona að við sjáum að það er allt í einu komið smit út í samfélagið og þá gæti þetta rokið upp. Við höfum séð það fram að þessu, bæði í þessari svokölluðu fyrstu, annarri og þriðju bylgju. En ég vona að það verði ekkert svo stórt en það er ástæða til að hafa áhyggjur af því.“

Fjöldi fólks samankominn við eldgosið í Geldingadal á Reykjanesi.Vísir/Vilhelm

Gæti verið áhætta að fjölmenna að gosinu

Fjölmargir hafa lagt leið sína að gosstöðvum í Geldingadal síðustu daga. Þórólfur sagði aðspurður að þar væri ólíklega mikil Covid-smithætta.

„Ég veit ekki hvernig fólk er að hittast þarna, hvort það er mikið nánd eða fólk mikið ofan í hvert öðru. En fólk á nú að geta verið ansi dreift á þessum stað og það er mikið rok þannig að það er ólíklegt að það sé mikil smithætta,“ sagði Þórólfur.

„En svo er fólk ekki mikið að hugsa um covid þegar það er labba í kringum gosstöðvarnar held ég. Þannig að það gæti verið einhver áhætta í því.“

Þá hefur Þórólfur lagt til við heilbrigðisráðherra að sóttvarnaaðgerðum verði breytt á landamærum. Hann sagði að fleiri hefðu komið smitaðir til landsins upp á síðkastið en áður.

„Það hefur breyst aðeins mynstrið að flestir eru að greinast í seinni skimun á landamærunum og það kannski gefur fólki falska öryggistilfinningu um að það sé ekki að smita og það sé þannig ekki að gæta að sér í sóttkví. Þannig höfum við fengið smit inn í samfélagið.“


Tengdar fréttir

Tveir smitaðir farþegar um borð í Norrænu

Tveir farþegar í Norrænu greindust með kórónuveiruna er þeir komu um borð í ferjuna í Hirtshals í Danmörku. Farþegarnir höfðu báðir framvísað neikvæðu PCR-prófi í samræmi við reglur. Kannað verður við komuna til landsins hvort smitin eru gömul.

Starfsmaður Landspítala greindist með Covid-19 í gær

Starfsmaður Landspítala er meðal þeirra sem greindust með Covid-19 í gær og eru innan við tíu samstarfsmenn nú komnir í sóttkví vegna þessa. Ekki er talið að smitið muni hafa teljandi áhrif á starfsemi spítalans.

Fólk sent í sótt­kví eftir nám­skeið hjá KSÍ um helgina

Starfsmaður KSÍ og fólk sem sat þjálfaranámskeið knattspyrnusambandsins um helgina er komið í sóttkví eftir að þátttakandi greindist með Covid-19. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, staðfestir þetta í samtali við Vísi og segir sambandið hafa verið í samskiptum við smitrakningateymið eftir að fregnir bárust af smitinu í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×