Innlent

Ísland enn eina „græna“ land álfunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Sóttvarnastofnun Evrópu birti uppfært kort í gær.
Sóttvarnastofnun Evrópu birti uppfært kort í gær. Sóttvarnastofnun Evrópu

Aftur er Ísland eina land Evrópu sem skilgreint er sem „grænt“ á nýuppfærðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu. Auk Íslands eru tvö fylki í Noregi skilgreind sem „græn“.

Uppfært kort var gefið út í gær og byggir tölfræðin á gögnum sem safnað er í vikunni áður. Um er að ræða litakóða sem sýna hvernig staðan er í hverju Evrópulandi fyrir sig varðandi faraldurinn.

Land eða svæði er skilgreint grænt ef fjórtán daga nýgengi á hverja 100 þúsund íbúa er undir 25 og hlutfall jákvæðra sýna undir fjögur prósent. Nýgengi innanlandssmita hér á landi er nú 2,5, en nýgengi landamærasmita 6,5. Samkvæmt tölfræði Sóttvarnastofnunarinnar sem aðskilur ekki þessi nýgengi er nýgengið hérlendis 7,96, margfalt minna en í öðrum ríkjum,

Sé litið til annarra ríkja Norðurlanda má sjá að nýgengið í Svíþjóð er nú 546, í Noregi 175, Danmörku 161 og Finnlandi 168.

Rauði liturinn á kortinu táknar að nýgengi smita sé annað hvort fimmtíu eða hærra og að hlutfall jákvæðra sýna sé fjögur prósent eða hærra eða þá að nýgengið sé hærra en 150. Eftir því sem hann er dekkri á kortinu er staðan alvarlegri.

Appelsínuguli liturinn þýðir annað hvort að nýgengið sé undir fimmtíu en hlutfall jákvæðra sé yfir fjögur prósent eða þá að nýgengið sé á bilinu 25 til 150 og hlutfall jákvæðra undir fjögur prósent. Ljósgrátt þýðir síðan að löndin eru ekki með í tölfræðinni.

Hefur áhyggjur

Greint var frá því fyrr í vikunni að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi lýst yfir ákveðnum áhyggjum af því fyrirkomulagi sem íslensk stjórnvöld hafa boðað á landamærunum þann 1. maí næstkomandi.

Litakóðunarkerfi stjórnvalda mun fela það í sér að fólk sem kemur frá löndum sem Sóttvarnastofnun Evrópu metur græn eða appelsínugul þurfa ekki að sæta tvöfaldri skimun á landamærunum með fimm daga sóttkví á milli.

Þórólfur sagði að til að mynda geti mismunandi svæði innan sama landsins verið merkt mismunandi lit og erfitt geti því reynst fyrir landamæraverði að vita nákvæmlega hvaðan fólk er að koma.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×