Innlent

Enginn greindist innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega sex þúsund manns hafa greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi heimsfaraldursins.
Rúmlega sex þúsund manns hafa greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi heimsfaraldursins. Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír greindust á landamærunum.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Síðustu daga hafa fjórir greinst utan sóttkvíar hér á landi. Voru þeir allir með breska afbrigði veirunnar.

Sautján eru nú í einangrun, en voru sextán í gær. 194 eru nú í sóttkví, en voru 107 í gær. 1.125 eru nú í skimunarsóttkví.

Þrír greindust á landamærum í gær, en þar var um að einn með virkt smit í fyrri skimun, einn með virkt smit í seinni skimun og svo einn sem reyndist vera með mótefni.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1,6, sami fjöldi og í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 3,5 , en var 3,0 í gær.

12.729 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 19.393 til viðbótar.

6.069 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 786 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 456 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin verður uppfærð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×