Innlent

Þrír hafa greinst með veiruna innan­lands síðan á föstu­dag

Atli Ísleifsson skrifar
12.707 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 16.607 til viðbótar.
12.707 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 16.607 til viðbótar. Vísir/Vilhelm

Þrír hafa greinst með veiruna innan­lands síðan á föstu­dag. Einn á föstudag, tveir á laugardag, en enginn í gær, sunnudag. Sá sem greindist á föstudag var utan sóttkvíar. Annar þeirra sem greindist á laugardag var utan sóttkvíar, en hinn ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Ekki eru lengur birtar upplýsingar um fjölda smitaðra um helgar.

Fimmtán eru nú í einangrun, en voru tíu á föstudag. 107 eru nú í sóttkví, en voru tíu á föstudag.

Fimm hafa greinst á landamærum á föstudag og um helgina. Á föstudaginn greinist einn í seinni landamæraskimun. Á laugardaginn greinist einn með virkt smit í fyrri skimun og einn mældist með mótefni. Á sunnudag greindust svo tveir, þar sem einn reyndist vera með mótefni en niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilviki hins.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1,1, en var 0,3 á föstudaginn. Nýgengi landamærasmita er nú 2,7, en var 3,0 á föstudag.

12.707 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 16.607 til viðbótar.

6.064 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Öll sýni gærdagsins reyndust neikvæð

Öll sýni sem tekin voru í gær vegna tveggja innanlandssmita sem greindust utan sóttkvíar um helgina reyndust neikvæð. Þetta segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×