Innlent

Syngjandi leigubílstjóri í Rangárvallasýslu

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Jón Taxi eins og hann er alltaf kallaður við nýja bílinn sinn, sem er númer þrettán af þeim Land Cruiserum, sem hann hefur keypt hjá Toyota á Selfossi.
Jón Taxi eins og hann er alltaf kallaður við nýja bílinn sinn, sem er númer þrettán af þeim Land Cruiserum, sem hann hefur keypt hjá Toyota á Selfossi. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Leigubílstjóri í Rangárvallasýslu segir rólegt í akstri á tímum Covid, það sé helst um helgar, sem nokkrir túrar komi. Bílstjórinn er duglegur að syngja fyrir farþega sína og hann var að kaupa sinn þrettánda Land Cruiser leigubílinn sinn.

Jón Pálsson er annar af tveimur leigubílstjórum í Rangárvallasýslu. Hann hefur keyrt leigubíl í 14 ár og segist vera í draumastarfinu enda mikill bíladellukarl og hefur gaman að samskiptum við fólk. Hann passar alltaf að hafa bílinn hreinan og snyrtilegan og hann er sérstaklega hrifin af rauðum bílum.

„Ég er búin að eiga þrjá svona rauða, mér líkar vel við þennan lit, hann sést vel og svo set ég crom á hann og þá kemur hann fínt út. Konurnar eru hrifnar af svona rauðum bílum, það má ekki gleyma konunum,“ segir Jón og hlær.

En hvernig er staðan hjá Jóni, er eitthvað að gera í leigubílaakstri á heimsfaraldri?

„Það er mjög dapurt, það er eiginlega ekkert að gera, nokkrir túrar um helgar en ég er bjartsýnn á framhaldið, þetta lagast þegar líður á sumarið.“

Jón sem varð 70 ára á dögunum gaf sér nýjan Land Cruiser í afmælisgjöf, sem hann keypti hjá Toyota á Selfossi en þetta er þrettándi Land Cruiserinn, sem hann kaupir þar, þann fyrsta keypti hann 2001.

Jón fer víða um á leigubílnum sínum og brestur í söng fyrir farþega sína þegar það liggur þannig á honum.

„Jón er einn af þessum topp kúnnum hjá okkur, búin að versla marga bíla, þrettán stykki ef ég man rétt. Ég held ég geti sagt að hann sé með smá bíladellu., hann vill hafa bílana fallega og góða,“ segir Haukur Baldvinsson hjá Toyota á Selfossi.

Jón gerir allt til að gleðja farþega sína og ef það liggur sérstaklega vel á honum þá syngur hann undir stýri við góðar undirtektir.

Jón fékk að sjálfsögðu blómvönd þegar hann fékk nýja bílinn afhentan á dögunum.Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×