Innlent

Enginn greindist innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Níu eru nú í einangrun vegna kórónuveirunnar hér á landi.
Níu eru nú í einangrun vegna kórónuveirunnar hér á landi. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Einn greindist með virkt smit á landamærum, og greindist hann í fyrri skimun.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Níu eru nú í einangrun, en voru þrettán í gær. Átta eru nú í sóttkví, samanborið við fjóra í gær. 905 eru í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 0,5 líkt og í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 3,0, en var 2,7 í gær.

12.644 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 8.547 til viðbótar.

6.055 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 456 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 137 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð




Fleiri fréttir

Sjá meira


×