Innlent

Spá allt að ellefu stiga hita

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hitaspákort morgundagsins lítur ágætlega út.
Hitaspákort morgundagsins lítur ágætlega út. Veðurstofa Íslands

Veðurstofan spáir fremur hægum vindi í dag og á sunnanverðu landinu þykknar upp með smáskúrum. Fyrir norðan rofar smám saman til eftir þungbúið veður í gær og það hlýnar í veðri; hiti verður eitt til fimm stig seinnipartinn en víða vægt frost á Norður- og Austurlandi.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að seint í dag nálgist svo skil landið úr suðvestri og í kvöld gengur hann síðan í suðaustan tíu til átján metra á sekúndu með rigningu um landið sunnan- og vestanvert.

„Sunnan kaldi eða strekkingur á morgun og rigning eða skúrir, og talsverð úrkoma um tíma á Suðausturlandi, en þurrt að kalla á norðaustanverðu landinu. Það hlýnar talsvert, en hiti verður víða á bilinu 4 til 11 stig.

Það bætir í vind annað kvöld og á laugardag er útlit fyrir ákveðna suðlæga átt með áframhaldandi vætu sunnan- og vestantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu:

Fremur hæg breytileg átt í dag og þykknar upp með smáskúrum S-lands, en rofar smám saman til fyrir norðan. Hlýnandi, hiti 1 til 6 stig seinnipartinn, en vægt frost á N- og A-landi. Vaxandi suðaustanátt í kvöld og fer að rigna um landið S- og V-vert.

Sunnan 8-15 m/s á morgun og rigning eða skúrir, en úrkomulítið um landið NA-vert. Hiti 4 til 11 stig. Bætir í vind annað kvöld.

Á föstudag:

Suðlæg átt, víða 8-15 m/s. Rigning eða skúrir, einkum SA-lands, en úrkomulítið um landið NA-vert. Hiti 4 til 11 stig. Bætir í vind um kvöldið.

Á laugardag:

Sunnan 13-20 og rigning, sums staðar talsverð úrkoma, en þurrt að kalla NA-til. Hiti breytist lítið. Hvassari suðvestanátt um kvöldið með skúrum eða éljum og kólnandi veðri.

Á sunnudag:

Hvöss suðvestanátt og éljagangur, en bjartviðri A-lands. Hiti um og yfir frostmarki. Dregur úr vindi síðdegis.

Á mánudag:

Minnkandi vestlæg átt og léttskýjað, en dálítil él N- og V-lands. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag:

Suðaustanátt og skýjað með köflum, hiti 0 til 5 stig. Bjartviðri á N- og A-landi og frost 1 til 8 stig.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir suðaustlæga átt með vætu S- og V-lands. Hlýnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×