Berst fyrir lífi sínu eftir hjartastopp á æfingu Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2021 08:00 Alfredo Quintana hefur leikið yfir 70 landsleiki fyrir Portúgal. EPA-EFE/Ole Martin Wold Portúgalski landsliðsmarkvörðurinn Alfredo Quintana, sem Íslendingar fengu að kynnast svo vel í janúar, fékk hjartastopp á handboltaæfingu með Porto í gær.
Quintana berst nú fyrir lífi sínu á Sao Joao sjúkrahúsinu í Porto en þangað var hann fluttur eftir að hafa hnigið niður á æfingu. Frekari upplýsingar verða gefnar þegar þær berast, segir í stuttri tilkynningu frá félagsliði hans. Quintana er lykilmaður í portúgalska landsliðinu og stóð í markinu í leikjunum þremur gegn Íslandi í undankeppni EM og á HM í Egyptalandi í síðasta mánuði. Hann er í afar miklum metum í portúgölskum handbolta og í grein Record segir að til marks um það sé fjöldi stuðningsskilaboða frá fyrrverandi og núverandi liðsfélögum, mótherjum og fleirum. Alfredo Quintana lék leikina þrjá gegn Íslandi í janúar og sýndi hvers hann er megnugur.vísir/hulda margrét Á Twitter-síðu Benfica, keppinauta Porto, segir til að mynda: „Í þessum leik erum við öll með þér í liði. Áfram Alfredo Quintana!“ Neste jogo estamos todos contigo. Força, Alfredo Quintana! https://t.co/UgpKqoACCx— SL Benfica (@SLBenfica) February 22, 2021 Sergio Conceicao, þjálfari knattspyrnuliðs Porto, hóf blaðamannafund eftir 2-1 sigurinn á Marítimo í gærkvöld á því að senda Quintana batakveðjur: „Við sendum stórt faðmlag til fjöslkyldunnar og biðjum auðvitað fyrir því að allt fari vel.“ Quintana er 32 ára gamall, fæddur á Kúbu en hefur búið í Portúgal síðasta áratuginn. Hann á að baki yfir 70 landsleiki fyrir Portúgal.
Handbolti HM 2021 í handbolta EM 2022 í handbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira