Innlent

Tæp­lega sex þúsund ein­staklingar bólu­settir í þessari viku

Eiður Þór Árnason skrifar
Heilbrigðisráðuneytið vonast til að hægt verði að klára bólusetningu fyrir lok júní.
Heilbrigðisráðuneytið vonast til að hægt verði að klára bólusetningu fyrir lok júní. Vísir/Vilhelm

Til stendur að bólusetja tæplega sex þúsund einstaklinga gegn Covid-19 í þessari viku sem er svipaður fjöldi og í vikunni á undan. 10.530 hafa nú lokið bólusetningu hér á landi og 6.702 til viðbótar fengið fyrri bólusetningu.

Alls verður 3.510 skömmtum af bóluefni Pfizer dreift um landið daganna 22. til 28. febrúar. Þar af fá um 2.200 einstaklingar seinni bólusetningu og 1.300 fyrri skammtinn, af því er fram kemur á vef landlæknisembættisins en í hópnum eru bæði aldraðir og starfsmenn heilbrigðisstofnana.

Þá stendur til að dreifa 2.400 skömmtum af bóluefni AstraZeneca í þessari viku og verður haldið áfram að bólusetja starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila með fyrri skammti.

Vonast til að klára bólusetningu fyrir lok júní

Fyrir helgi gáfu heilbrigðisyfirvöld út sérstakt bólusetningardagatal sem ætlað er að gefa fólki vísbendingu um að hvenær líklegt er að bólusetning hefjist í ákveðnum forgangshópum.

Gangi forsendur dagatalsins eftir lýkur bólusetningu gegn Covid-19 hér á landi fyrir lok júní næstkomandi, af því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins. Dagatalið byggist á fyrirliggjandi upplýsingum um afhendingu bóluefna og áætlanir þar af lútandi.

Til stendur að uppfæra dagatalið eftir því sem bólusetningu vindur fram og nýjar upplýsingar berast um bóluefni og afhendingu þeirra að sögn stjórnvalda. Eins og er liggur einungis fyrir staðfest áætlun um afhendingu bóluefna Pfizer, AstraZeneca og Moderna fram til lok mars.

Fyrirtækin stefna að því að verða búin að afhenda Íslendingum bóluefni fyrir alls 190 þúsund einstaklinga fyrir lok júní. Þar að auki taka stjórnvöld mið af óljósari áætlunum bóluefnaframleiðandanna Curavac, Janssen og Novavax sem vonast er til að fái skilyrt markaðsleyfi á næstunni. Alls verður rúmlega 280 þúsund einstaklingum boðin bólusetning á Íslandi, eða öllum sem eru 16 ára og eldri

Heilsugæslan fagnar dagatalinu

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 á föstudag að henni litist mjög vel á dagatalið og reiknaði með því að tilkoma þess myndi draga úr fjölda fyrirspurna um bólusetningar.

„Það er mikið hringt á heilsugæslunnar og mikið verið að senda fyrirspurnir á okkur svo þetta mun hjálpa, bæði varðandi aldurshópanna og þá skjólstæðinga sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Þarna geta þeir séð hvenær röðin kemur að þeim.“


Tengdar fréttir

Elsti hópurinn boðaður í seinni bólusetningu

Allir þeir sem eru níutíu ára og eldri eru boðaðir til seinni bólusetningar gegn kórónuveirunni á þriðjudag. Þeir sem misstu af fyrri bólusetningunni geta einnig mætt til að fá hana.

Veður og veira... það vorar að lokum

Heilbrigðisyfirvöld stefna nú að því að bólusetja 190 þúsund landsmanna fyrir júnílok en gróft reiknað jafngildir það því að allir 35 ára og eldri verði þá bólusettir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×