Innlent

Fjórða daginn í röð greindist enginn innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Bólusetningar gegn Covid-19 hófust hér á landi skömmu fyrir síðustu áramót.
Bólusetningar gegn Covid-19 hófust hér á landi skömmu fyrir síðustu áramót. Vísir/Vilhelm

Fjórða daginn í röð greindist enginn með korónuveiruna innanlands í gær.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru nú átta á sjúkrahúsi vegna Covid-19.

Tveir greindust smitaðir á landamærum í gær, en þeir reyndust báðir vera með mótefni.

24 manns eru nú í einangrun, samanborið við 26 í gær. Tuttugu eru nú í sóttkví, sami fjöldi og í gær. 715 eru í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1,9, en var 2,2 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 5,5, en var 5,5 í gær.

Alls hafa 6.039 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 706 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 176 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×