Innlent

Veitur auka vöktun neyslu­vatns í Heið­mörk

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mælibúnaðurinn sem keyptur var mælir grugg, leiðni, sýrustig, hita og flúorinnihald með mikilli nákvæmni og miðlar gögnum ört í gegnum vefviðmót.
Mælibúnaðurinn sem keyptur var mælir grugg, leiðni, sýrustig, hita og flúorinnihald með mikilli nákvæmni og miðlar gögnum ört í gegnum vefviðmót. Veitur

Veitur hafa sett upp vöktunarbúnað til að vakta mögulegar breytingar á efnainnihaldi neysluvatns frá vatnstökusvæðum í Heiðmörk ef kæmi til eldgoss á Reykjanesskaga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Ákvörðun um vöktunina var tekin í kjölfar fundar með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra sem haldinn var í febrúar í fyrra en land hafði þá tekið að rísa þegar land reis vegna kvikuinnskots nærri fjallinu Þorbirni í Grindavík.

Með gosi á því svæði gætu gosefni borist til höfuðborgarsvæðisins, fallið niður á vatnstökusvæðin og ógnað þannig drykkjarhæfi vatnsins.

„Ákveðið var að hefja vöktunina svo skjótt sem verða mætti til þess að ákvarða betur breytileika í efnainnihaldi vatnsins eins og það er við bestu skilyrði og hafa þannig gögn til samanburðar ef/þegar af eldgosi verður.

Mælibúnaðurinn sem keyptur var mælir grugg, leiðni, sýrustig, hita og flúorinnihald með mikilli nákvæmni og miðlar gögnum ört í gegnum vefviðmót. Sett voru upp tvö tæki sem vakta vatnið frá vatnstökusvæðunum í Heiðmörk; Vatnsendakrikum annars vegar og Gvendarbrunna- og Myllulækjarsvæðinu hins vegar.

Jafnframt hafa Veitur útfært viðbragðs- og vöktunaráætlun til að fylgjast með öðrum þáttum er haft geta áhrif á vatnið en ekki er auðsótt að mæla í rauntíma.

Með þessari nýju vöktun eru Veitur í aðstöðu til að fylgjast betur með mögulegum breytingum á efnainnihaldi neysluvatns.

Markmiðið er einnig að vera í stakk búin að miðla upplýsingunum til vatnsveitna í nágrannasveitarfélögum sem að öllum líkindum myndu verða fyrir sambærilegum áhrifum af eldgosi, kæmi til þess,“ segir í tilkynningu frá Veitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×