Innlent

Lætur ekki undan þrýstingi en ætlar sér formennsku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helgi Pétursson ætlar sér í formanninn þrátt fyrir engar áskoranir. Fólkið í kringum hann tekur tíðindunum vel.
Helgi Pétursson ætlar sér í formanninn þrátt fyrir engar áskoranir. Fólkið í kringum hann tekur tíðindunum vel. Aðsend

Helgi Pétursson, tónlistarmaður og einn forsvígsmanna Gráa hersins, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku í Landssambandi eldri borgara. Hann segir engan hafa skorað á sig að gefa kost á sér til formennsku.

Helgi greinir frá ákvörðun sinni í tilkynningu til fjölmiðla.

„Það er algengt í tilkynningum sem þessum að vísað sé til þess að viðkomandi láti undan miklum þrýstingi og stanslausum símhringingum. Um það hefur ekki verið að ræða. Nokkrir vinir mínir og bandamenn í baráttu fyrir betri kjörum eldra fólks, sem ég hef rætt við um þetta af fyrrabragði, hafa hins vegar tekið þessum hugmyndum með velvilja,“ segir Helgi sem margir þekkja úr hljómsveitinni Ríó Tríó.

„Þetta skref er í mínum huga framhald af þátttöku í baráttu Gráa hersins fyrir mannsæmandi kjörum eldra fólks, frelsi til atvinnuþátttöku, margvíslegum mannréttindum, viðurkenningu á framlagi eldra fólks til samfélagsins, samhæfðri heilbrigðisþjónustu og þeirri staðreynd að eldra fólk vill hafa áhrif á eigið líf. Fram til sigurs!“

Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sem lýkur fjögurra ára formennsku í ár, segir að hennar vertíð ljúki lögum samkvæmt í ár. Fjögurra ára hámark er í formannssetu hjá samtökunum.

Þórunn hafði ekki frétt af framboði Helga og engin önnur framboð hafi borist. Helgi segir í tilkynningu vonast til að aðalfundur verði haldinn á vormánuðum og Þórunn segir Covid-19 faraldurinn ráða því. Reikna megi með 120 manns á fundinn en auk þess þurfa félögin í landinu, sem eru 55 talsins, líka að halda sína aðalfundi. Um þrjátíu þúsund manns tilheyra samtökunum.

Fundurinn í fyrra fór fram 30. júní á Hótel Sögu en tímasetningin var einmitt valin með tilliti til ástandsins í samfélaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×