Innlent

Enginn greindist innan­­lands og enginn á landa­mærum

Atli Ísleifsson skrifar
Fjöldi lögreglumanna í framlínu, sjúkraflutningamenn og slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu var bólusettur í Laugardalshöll í gær þar sem þeir fengu seinni Moderna sprautuna sína.
Fjöldi lögreglumanna í framlínu, sjúkraflutningamenn og slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu var bólusettur í Laugardalshöll í gær þar sem þeir fengu seinni Moderna sprautuna sína. Vísir/Vilhelm

Annan daginn í röð greindist enginn með kórónuveiruna innanlands í gær. Enginn greindist heldur á landamærum. 

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru nú ellefu á sjúkrahúsi vegna Covid-19 samanborið við tólf í gær.

21 er nú í einangrun, samanborið við 24 í gær. Þrettán eru nú í sóttkví, en þeir voru sautján í gær. 952 eru nú í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1,4, samanborið við 1,9 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 5,5 líkt og í gær.

Alls hafa 6.026 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 493 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 179 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Bólusetningu er nú lokið hjá 5.362 einstaklingum og er hafin hjá 8.015 til viðbótar.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×