Innlent

Enginn greindist innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa rúmlega sex þúsund manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Alls hafa rúmlega sex þúsund manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna innan­lands í gær. Einn greindist með smit á landamærum í gær og greindist sá í seinni landamæraskimun.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru nú tólf á sjúkrahúsi vegna Covid-19 samanborið við þrettán í gær.

24 manns eru nú í einangrun, samanborið við 28 í gær. Sautján eru nú í sóttkví, en þeir voru tuttugu í gær. 983 eru nú í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1,9, samanborið við 3,0 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 5,5, en var 6,0 í gær.

Alls hafa 6.026 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 635 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 315 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 27 sýni í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Bólusetningu er nú lokið hjá 4.856 einstaklingum og er hafin hjá 7.945 til viðbótar.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×