Gylfi skorar bara með fyrirliðabandið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2021 08:31 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu á móti Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í gær. Þetta var þriðja markið hans í síðustu níu leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Getty/Michael Regan Gylfi Þór Sigurðsson var á skotskónum með Everton liðinu í gær þegar liðið vann 2-1 sigur á Leeds United í ensku úrvalsdeildinni. Seamus Coleman sat á bekknum í gær og Gylfi Þór Sigurðsson var því með fyrirliðabandið í leiknum en það hefur oft boðað gott á þessu tímabili. Gylfi var líka með fyrirliðabandið þegar hann skoraði sigurmarkið á móti Chelsea í desember og sigurmarkið á móit Sheffield United á öðrum degi jóla. Gylfi Þór Sigurðsson kom Everton í 1-0 á móti Leeds með 64. marki sínu í ensku úrvalsdeildinni. pic.twitter.com/9gUkSNIshf— Síminn (@siminn) February 3, 2021 Gylfi var líka fyrirliði Everton í 3-0 sigri á Salford í enska deildabikarnum í september en þá skoraði hann fyrsta mark sitt á leiktíðinni. Þetta var fjórða mark Gylfa með fyrirliðabandið á tímabilinu en öll mörkin hans hafa því komið sem fyrirliði Everton. Hann á enn eftir að skora á leiktíðinni þegar hann spilar sem óbreyttur leikmaður. Allar stoðsendingar Gylfa nema ein hafa líka komið í leikjum sem Gylfi hefur leitt Everton liðið út á völlinn. Gylfi Sigurdsson: Personally, I am very happy, probably the happiest I ve been at Everton and, hopefully, we can continue building on the past few months. There is a lot of excitement around the team, we are all pleased with what we are doing. (Source - Liverpool Echo) pic.twitter.com/SkISpmtt5b— TheMightyBlues (@MightyBluesYT) January 29, 2021 Gylfi hefur því komið að sjö mörkum í ellefu leikjum sem fyrirliði en aðeins einu marki í fjórtán leikjum þar sem hann hefur ekki verið með bandið. Gylfi fékk reyndar fyrirliðabandið í þeim leik þegar Seamus Coleman fór meiddur af velli en var þá búinn að leggja upp mark fyrir Dominic Calvert-Lewin. Gylfi með fyrirliðabandið hjá Everton 2020-21 11 leikir 4 mörk 3 stoðsendingar Gylfi ekki með fyrirliðabandið hjá Everton 2020-21 14 leikir 0 mörk 1 stoðsending Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Sjá meira
Seamus Coleman sat á bekknum í gær og Gylfi Þór Sigurðsson var því með fyrirliðabandið í leiknum en það hefur oft boðað gott á þessu tímabili. Gylfi var líka með fyrirliðabandið þegar hann skoraði sigurmarkið á móti Chelsea í desember og sigurmarkið á móit Sheffield United á öðrum degi jóla. Gylfi Þór Sigurðsson kom Everton í 1-0 á móti Leeds með 64. marki sínu í ensku úrvalsdeildinni. pic.twitter.com/9gUkSNIshf— Síminn (@siminn) February 3, 2021 Gylfi var líka fyrirliði Everton í 3-0 sigri á Salford í enska deildabikarnum í september en þá skoraði hann fyrsta mark sitt á leiktíðinni. Þetta var fjórða mark Gylfa með fyrirliðabandið á tímabilinu en öll mörkin hans hafa því komið sem fyrirliði Everton. Hann á enn eftir að skora á leiktíðinni þegar hann spilar sem óbreyttur leikmaður. Allar stoðsendingar Gylfa nema ein hafa líka komið í leikjum sem Gylfi hefur leitt Everton liðið út á völlinn. Gylfi Sigurdsson: Personally, I am very happy, probably the happiest I ve been at Everton and, hopefully, we can continue building on the past few months. There is a lot of excitement around the team, we are all pleased with what we are doing. (Source - Liverpool Echo) pic.twitter.com/SkISpmtt5b— TheMightyBlues (@MightyBluesYT) January 29, 2021 Gylfi hefur því komið að sjö mörkum í ellefu leikjum sem fyrirliði en aðeins einu marki í fjórtán leikjum þar sem hann hefur ekki verið með bandið. Gylfi fékk reyndar fyrirliðabandið í þeim leik þegar Seamus Coleman fór meiddur af velli en var þá búinn að leggja upp mark fyrir Dominic Calvert-Lewin. Gylfi með fyrirliðabandið hjá Everton 2020-21 11 leikir 4 mörk 3 stoðsendingar Gylfi ekki með fyrirliðabandið hjá Everton 2020-21 14 leikir 0 mörk 1 stoðsending
Gylfi með fyrirliðabandið hjá Everton 2020-21 11 leikir 4 mörk 3 stoðsendingar Gylfi ekki með fyrirliðabandið hjá Everton 2020-21 14 leikir 0 mörk 1 stoðsending
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Sjá meira