Innlent

Enginn greindist innan­lands í gær

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Frá sýnatöku heilsugæslunnar.
Frá sýnatöku heilsugæslunnar. Vísir/Vilhelm

Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Sex greindust á landamærunum en mótefnastaða þeirra liggur ekki fyrir.

Þetta staðfestir Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi og vísar til bráðabirgðatalna almannavarna.

Covid.is, upplýsingasíða almannavarna og landlæknis um framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi, er ekki uppfærð um helgar. Nánari upplýsingar um fjölda sýna, nýgengi og aðrar ítarlegar upplýsingar verða því aðgengilegar á vefnum klukkan ellefu á morgun.

Á föstudag greindist einn einstaklingur með kórónuveiruna innanlands og var sá í sóttkví. Daginn þar áður, fimmtudag, greindist enginn með veiruna. Á miðvikudag greindust þá tveir einstaklingar, báðir í sóttkví.

Samkvæmt covid.is þarf að leita alla leið til 20. janúar til að finna tilfelli þar sem einstaklingur greindist með kórónuveiruna utan sóttkvíar hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×